Hugur - 01.06.2010, Blaðsíða 117

Hugur - 01.06.2010, Blaðsíða 117
Nietzsche um líkamann sem náttúru 115 gefur þannig tækifæri til að endurskoða eitthvað og gera tilraunir með okkur sjálf. Þess vegna þurfum við að beita hugkvæmni í viðbrögðum okkar við því sem amar að okkur til þess að verða ekki sjúkleikanum að bráð. Það er einmitt mælikvarði á styrk og veikleika hvernig við tökumst á við takmarkanir sem þessar, hvort við gefumst upp eða tökumst á við þær. Manneskja í líkama sem er skertur að getu getur verið heilbrigð og full af lífsorku. Og manneskja sem býr við óskerta lík- amlega getu getur verið kraft- og líflaus. Þess vegna er þetta spurning um hvernig við tökumst á við það sem okkur er gefið af náttúrunnar hendi. Með orðfæri samtímans mætti segja að Nietzsche hafi boðað meðvitund um líkamann og „að hlusta á“ eigin líkama. Ofannefnd dæmi gefa aðeins örlitla innsýn í hugmynd- ir hans um hvernig veita megi viðnám þeirri líkamsforsmán sem hafi einkennt hefðina og tvíhyggju sálar og líkama sem hefur verið miðlæg í vestrænni heim- speki og guðfræði. Þessi sýn hefur mótað skólalæknisfræði nútímans að því marki sem hún hefiir ekki tekið mið af samspili hugar og líkama, og þar með líkama og umhverfis, til skilningsauka á sjúkdómum og heilbrigði. I ljósi þessarar sögu k'kamans felast hugmyndir Nietzsches um að verða „nátt- úrulegri" fyrst og fremst í því að vera vakandi gagnvart kenndum og blygðast sín ekki fyrir hvatir og eðHsávísanir, heldur vera opin fyrir þeim. Hafa verður í huga að Nietzsche vinnur að heimspeki h'kamans á tímum klemmds siðferðis um eigin h'kama og fordæmingar hómóerótískrar þrár. Hann vildi að náttúruleiki líkamans nyti þeirrar virðingar og tignar sem honum bæri, en það hafði einnig í för með sér göfgun hans á kynverund. Þetta ber ekki að skilja sem svo að náttúran sé uppspretta siðferðilegra gilda að dómi Nietzsches. Náttúran er hvorki góð né vond og það felur í sér að hvatir okk- ar séu í sjálfu sér hvorki góðar né vondar (þótt afleiðingar útrásar þeirra geti verið ýmist góðar eða vondar). Náttúran er ósiðræn og þess vegna taldi Nietzsche hina náttúrulegu manngerð einnig vera ósiðræna. Að vera náttúruleg manngerð merkir samt ekki nauðsynlega að vera óbeisluð og frjáls. Aðdáun Nietzsches beindist að persónum sem bjuggu yfir miklum h'fskrafti og tókst að virkja þennan kraft og gefa honum form og eigin stíl. Sterkum persónum tekst að beina kröftum sínum í vissa farvegi með því að gefa vilja sínum stefnu. Þessar hugmyndir Nietzsches eru í anda „vítalisma", en á grundvelli þessarar heimspekistefnu taldi hann forsendu niannlegrar tilvistar vera þá að taka lífinu eins og það er, með gleði sinni og þraut, og þá einnig að takast á við náttúrulegar hamfarir líkamans eins og veikindi og hrörnun. Nietzsche kaus hins vegar ekki að dvelja um of við afturför og dauða, heldur beindi frekar sjónum sínum að því sem hann taldi efla með mönnum jákvætt viðhorf til h'fsins. Að upplifa líkama sem náttúru Það eru nokkur fyrirbæri sem Nietzsche telur til þess fallin að skilja hvað felst í því að vera náttúrulegri manngerð. Fæðing er eitt af þeim. í síðari skriföm sínum fyúlar hann um hvernig myndhverfing fæðingar lýsir hinni skapandi reynslu díón-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148
Blaðsíða 149
Blaðsíða 150
Blaðsíða 151
Blaðsíða 152
Blaðsíða 153
Blaðsíða 154
Blaðsíða 155
Blaðsíða 156
Blaðsíða 157
Blaðsíða 158
Blaðsíða 159
Blaðsíða 160
Blaðsíða 161
Blaðsíða 162
Blaðsíða 163
Blaðsíða 164
Blaðsíða 165
Blaðsíða 166
Blaðsíða 167
Blaðsíða 168
Blaðsíða 169
Blaðsíða 170
Blaðsíða 171
Blaðsíða 172
Blaðsíða 173
Blaðsíða 174
Blaðsíða 175
Blaðsíða 176
Blaðsíða 177
Blaðsíða 178
Blaðsíða 179
Blaðsíða 180
Blaðsíða 181
Blaðsíða 182
Blaðsíða 183
Blaðsíða 184
Blaðsíða 185
Blaðsíða 186
Blaðsíða 187
Blaðsíða 188
Blaðsíða 189
Blaðsíða 190
Blaðsíða 191
Blaðsíða 192
Blaðsíða 193
Blaðsíða 194
Blaðsíða 195
Blaðsíða 196
Blaðsíða 197
Blaðsíða 198
Blaðsíða 199
Blaðsíða 200
Blaðsíða 201
Blaðsíða 202
Blaðsíða 203
Blaðsíða 204
Blaðsíða 205
Blaðsíða 206
Blaðsíða 207
Blaðsíða 208
Blaðsíða 209
Blaðsíða 210
Blaðsíða 211
Blaðsíða 212
Blaðsíða 213
Blaðsíða 214
Blaðsíða 215
Blaðsíða 216
Blaðsíða 217
Blaðsíða 218
Blaðsíða 219
Blaðsíða 220
Blaðsíða 221
Blaðsíða 222
Blaðsíða 223
Blaðsíða 224
Blaðsíða 225
Blaðsíða 226

x

Hugur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.