Hugur - 01.06.2010, Blaðsíða 205

Hugur - 01.06.2010, Blaðsíða 205
Inn við beinið 203 tíðaranda. En þeir virðast samt báðir telja að menn hljóti að hafa skoðanir sem mynda einhvers konar kjarna eða sjálf sem er lítt breytilegt frá degi til dags. Sumir aðrir sem staðsetja sjálfið eins og á mynd 1 eða 2 gera hins vegar ráð fyrir að það sé heldur ístöðulaust. Þannig áleit Bandaríkjamaðurinn Richard Rorty t.d. að einstaklingur væri fær um að valda róttækum breytingum á sínu eigin sjálfi með því einu að orða ævisögu sína upp á nýtt (Jopling, 2000, bls. 133-4). Onnur athyglisverð kenning um ístöðulaust sjálf er sett fram og skýrð í bókinni The Saturated Self: Dilemmas of Identity in Gontemporary Life eftir landa Rortys, sálfræðinginn Kenneth J. Gergen. I þessari bók, sem kom fyrst út árið 1991 og var endurútgefin árið 2000, segir Gergen að tvenns konar orðaforði um sjálfið hafi mótað hugmyndir manna á 20. öld. Önnur gerðin, sem rekja má til rómantísku stefunnar, eignar hverjum einstaklingi djúpar tilfinningar, sköpunargáfu og siðferðilegan styrk. Hin gerð- in er, eftir því sem Gergen segir, afsprengi módernismans sem leggur áherslu á skynsemi, meðvitaðar skoðanir, heiðarleika og reglusemi. Þessar tvenns konar hugmyndir um sjálfið segir hann að séu nú á undanhaldi, einkum vegna félags- legrar mettunar (e. social saturatiorí) sem er í því fólgin að fyrir tilstilli nútíma- samskiptatækni sé hugur einstaklingsins fullur af ósamstæðum og ósamhljóða röddum alls mannkyns sem fá hann til að leika svo mörg og sundurleit hlutverk að hann hættir að vera sjálf með þekkjanleg einkenni. Gergen orðar þetta svo að þegar sjálfið mettast hætti það að vera eiginlegt sjálf (Gergen 2000, bls. 6-7). Hann skýrir þessa meginkenningu sína á nokkrum stöðum í bókinni og segir m.a. að eftir því sem leið á 20. öldina hafi röddum í huga hvers einstaklings fjölgað (Gergen, 2000, bls. 71). Afleiðing þessa er að mati Gergens (2000, bls. 80 og bls. 225) að menn geta ekki lengur haldið sig við neinn einn sjálfsskilning og þar með ekki heldur haft sjálf í skilningi rómantíkurinnar eða módernismans - möguleik- inn á að vera eitthvað ákveðið af fullri einlægni verði því fjarlægur. Lýsingar Gergens á breyttu menningarástandi eru á köflum nokkuð ýkju- kenndar og hann blandar saman við þær góðum skammti af pósmódernískum ólíkindalátum. Meðal annars heldur hann því fram að ást foreldra á börnum sín- um og sorg ef þau deyja séu afsprengi hugsunarháttar sem á sér skamma sögu; að hlutlægur sannleikur og skynsemi séu með einhverjum hætti úr sögunni; hug- tökin satt og ósatt eigi ekki lengur við né heldur greinarmunurinn á hugsun og veruleika (Gergen 2000, bls. 12-13, bls. 89-94, bls. 101-103, bls. 187). Sumt af þessu dregur hann svo að einhverju leyti til baka undir lok bókarinnar þar sem hann viðurkennir að þessi póstmóderníski æringjaháttur geti ekki þrifist nema sem andóf og þurfi því að hafa einhverja trú á skynsemi og sannleika til að hrópa gegn (Gergen 2000, bls. 194 og bls. 247). Þar sem Gergen áh'tur að sjálfið sé ekkert nema sjálfsmynd sem breytist auð- veldlega fyrir áhrif frá fjölmiðlum og kynnum af ólíku fólki telur hann að hvernig fólk er inn við beinið sé allt á hverfanda hveli nú um stundir. Hann skýrir þó ekki hvers vegna fólk sem þekkir til margs konar menningar, hefur til dæmis víða farið eða margt lesið, virðist ekki síður hafa stöðugt sjálf en þeir sem eru heimaaldir að öllu leyti. Að mínu viti er kenning hans því ekki mjög sennileg. Hann skýrir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148
Blaðsíða 149
Blaðsíða 150
Blaðsíða 151
Blaðsíða 152
Blaðsíða 153
Blaðsíða 154
Blaðsíða 155
Blaðsíða 156
Blaðsíða 157
Blaðsíða 158
Blaðsíða 159
Blaðsíða 160
Blaðsíða 161
Blaðsíða 162
Blaðsíða 163
Blaðsíða 164
Blaðsíða 165
Blaðsíða 166
Blaðsíða 167
Blaðsíða 168
Blaðsíða 169
Blaðsíða 170
Blaðsíða 171
Blaðsíða 172
Blaðsíða 173
Blaðsíða 174
Blaðsíða 175
Blaðsíða 176
Blaðsíða 177
Blaðsíða 178
Blaðsíða 179
Blaðsíða 180
Blaðsíða 181
Blaðsíða 182
Blaðsíða 183
Blaðsíða 184
Blaðsíða 185
Blaðsíða 186
Blaðsíða 187
Blaðsíða 188
Blaðsíða 189
Blaðsíða 190
Blaðsíða 191
Blaðsíða 192
Blaðsíða 193
Blaðsíða 194
Blaðsíða 195
Blaðsíða 196
Blaðsíða 197
Blaðsíða 198
Blaðsíða 199
Blaðsíða 200
Blaðsíða 201
Blaðsíða 202
Blaðsíða 203
Blaðsíða 204
Blaðsíða 205
Blaðsíða 206
Blaðsíða 207
Blaðsíða 208
Blaðsíða 209
Blaðsíða 210
Blaðsíða 211
Blaðsíða 212
Blaðsíða 213
Blaðsíða 214
Blaðsíða 215
Blaðsíða 216
Blaðsíða 217
Blaðsíða 218
Blaðsíða 219
Blaðsíða 220
Blaðsíða 221
Blaðsíða 222
Blaðsíða 223
Blaðsíða 224
Blaðsíða 225
Blaðsíða 226

x

Hugur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.