Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.05.2005, Síða 106
KRISTJAN ARNASON
og umræðu um málpólitík hafa aðstæður í öðrum löndum haft áhrif á það
hvemig þar er rætt um tungumál. I hinu tvínmgda Finnlandi hafa ffá
upphafi sjálfstæðis verið til lög um stöðu finnsku og sænsku, t.d. um
kennslu í málunum og rétt manna til að nota þau. Þetta er dæmigert
stöðustýringarvandamál sem við Islendingar höfinn ekki þurft að glíma
við fram að þessu. Hér hefur það verið undirskihð að íslenska væri hið
opinbera mál. Það er í raun hvergi tekið fram berum orðum t.d. að ís-
lensk lög skuli vera á íslensku. En að minnsta kosti sumir lögfræðingar
telja þó að það sé undirskilið, þannig að í áHæði um að birta beri lög op-
inberlega felist í raun að þau séu á íslensku. Nýlega hafa SHar birt skýrslu
um stöðu sænskunnar, þar sem lagt er til að sænska verði opinbert mál í
Svíþjóð.9 Aður hafði það verið nánast undirskilið að sænska væri ríkismál,
en með auknum fjölda innflytjenda og meiri meðvitund um réttindi
minnihlutahópa og innflytjenda og ekki síst vegna aukinnar enskunotk-
unar, t.d. í menntakerfinu, var farið af stað með þessa skýrslugerð.
En nú standa íslendingar frammi fyrir alvarlegu stöðuvandamáfi.
Enska sækir á. Háskólakennsla fer víða fram á ensku, og dæmigert fjnir
viðbrögð við því er samþykkt málstefhu Háskóla Islands, sem hefur að
leiðarljósi að talmál og ritmál háskólans sé íslenska, en jafnframt er gert
ráð fyrir að enska verði notuð í rannsóknum og raimsóknarnámi. Ehuug
er vikið að þessu í stefhuskrá íslenskrar málnefiidar finir árin 2002-2005
og á Alþingi 2003-2004 var flutt tillaga til þingsályktunar um að athuga
réttarstöðu íslenskrar tungu.10 Ohætt er að segja að þær aðstæður sem ís-
lenska býr við um þessar mundir geti orðið nýr prófsteinn á það hvernig
„þjóðarsálin“ bregst við í hugsun um tungu sína og menningu. Verða
viðbrögðin með þeim hætti að „hreintungugenin“ blómstri, eða bregst
samfélagið og menntavaldið við á einhvern annan hátt en það hefur gert
áður? A síðustu árum og misserum hefur borið á því að menntamemi,
sem lengst af hafa flestir verið hlynntdr íslenskri málstefhu, andmæla
hefðbundnum gildum í íslenskri málrækt.11 Að hluta til er þar um að
9 Statens offentliga utredninger SOU 2002:27.
10 http://www.hi.is/page/malstefna; http://www.ismal.hi.is/Stefntiskra2002-2005.
html. Stefnuskrá Islenskrar málnefndar er líka birt í Málfregnum 21 (2002), bls.
57-61. Þingsályktunartillagan er skráð hjá Alþingi, 130. löggjafarþingi 2003-2004
sem þskj. 517 - 378. mál.
11 Sjá t.d. Gauta Kristmannsson, jrMálar íslensk nválstefna málið inn í hom“ , Málstefna
- Language Plaimmg, ritstjórar Ari Páll Kristinsson og Gauti Krisnnannsson,
Reykjavík: Islensk málnefnd, 2004, bls. 43-49. Hallfríður Þórarinsdóttir mannífæð-