Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.05.2005, Page 165
FORSETIÍSLANDS OG UTANRÍKISSTEFNAN
4) ísland hafði engin sérstök tengsl við Belgíu. Samskipti hafa ætíð verið
lítdl milli landanna og Belgía hefur aldrei haft sendiherra á Islandi.
Sendiherra Islands hjá NATO og í Belgíu sinnti fyrst og fremst sam-
skiptum við Atlantshafsbandalagið.
Kristján Eldjám hafði lýst yfir í forsetakosningunum 1968 að Alþingi og
ríkisstjóm ættu að taka afstöðu tdl aðildar Islands að Atlantshafsbandalag-
inu, ekki forsetinn.62 Kristján var mjög heimakær forseti í samanburði við
Asgeir Asgeirsson sem fór í heimsóknir til Bandaríkjanna, Bredands,
Kanada og Israels auk Norðurlandarma. Efdr að Belgíuferðin var ákveð-
in kom síðan í ljós að Kristjáni varð ekki haggað og hann fór af landi
brott, þrátt fyrir að brostin væri á alvarleg stjómarkreppa í landinu eftir
að þingflokkur Alþýðuflokksins rauf stjómarsamstarfið við Framsóknar-
flokk og Alþýðubandalag.
2.4. Vigdís Finnbogadóttir (forseti 1980-1996)
Vigdís Finnbogadóttir (f. 1930) hefur háskólapróf í frönsku og starfaði
lengi sem kennari. Hún var leikhússtjóri Leikfélags Reykjavíkur er hún
bauð sig fram í forsetakosningum 1980. Vigdís var kjörin forsetd Islands
með 33,8 prósentum atkvæða, fyrst kvenna í heiminum tdl að vera þjóð-
kjörinn þjóðhöfðingi. Hún var endurkjörin án mótframboðs árið 1984
en fékk mótframboð árið 1988 (Sigrún Þorsteinsdóttdr) og hlaut 94,6
prósent atkvæða. Kosningaþátttakan þá var 72,8 prósent en 90,5 prósent
í forsetakosningunum 1980. Vigdís var endurkjörin án mótframboðs ár-
ið 1992.
Arið 1960 var baráttan fyrir ævarandi hlutleysi Islands og gegn dvöl
Bandaríkjahers í landinu í djúpri lægð. Þá bmgðu herstöðvaandstæðing-
ar á gamalt ráð úr sjálfstæðisbaráttunni. Þeir fóm í smiðju lýðræðishug-
mynda þeirra, sem Jón Sigurðsson aðhylltist og boðaði Islendingum.
Þeir leituðu eftdr þátttöku fólksins og byggðu upp ný samtök herstöðva-
andstæðinga, samtök sem skyldu vera óháð stjórnmálaflokkum. Fyrst var
farin 50 kílómetra löng ganga frá Keflavíkurstöðinni tdl Reykjavíkur. Síð-
ar um sumarið vom svo haldnir 60 fundir um allt land þar sem 1-2 þús-
und manns völdu fulltrúa á Þingvallafund. Þar vom Samtök hernáms-
andstæðinga stofnuð í byrjun september.
\dgdís Finnbogadóttdr tók þátt í Keflavíkurgöngunni og var fulltrúi á
Þingvöllum. Dagblaðið Þjóðviljinn birtd þann 19. júní 1960 viðtal við Vig-
62 A'Iatthías Johannessen, „Samtal við Kristján Eldjám“, Morgunblaðið 26. maí 1968.
r63