Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.05.2005, Síða 166
SVANUR KRISTJÁNSSON
dísi og er hún þar titluð „frú“. Vigdís skýrði þar \irka andstöðu sína við
dvöl hersins og sagði: „Eg er á rnóti erlendum her í landi, sem hefur haft
mikið fyrir að endurheimta sjálfstæði sitt. Eg álít að Islendingar séu fær-
ir um að hfa fjárhagslega án þess að styðjast við hemaðarfé.“
Þjóðviljinn gerði öllum þessum viðbmðtun ítarleg skil í máh og mynd-
um. Ein myndanna frá Þingvallafundinum er af fundafólki sem saman-
komið var í herbergi nr. 18 í Hótel Valhöh.63 Þar er að finna starfsfólk
fimdarins, m.a. nokkrar konur sem sitja og vélrita. Ein þeirra er Vigdís
Finnbogadóttir sem nú er í Þjóðviljanum titluð „vélritunarstúlka“, og seg-
ir það sitt um stöðu kvenna í íslensku þjóðfélagi á þessum tíma. Konurn-
ar vom nógu góðar til að vinna verkin en ekki til að vera í forystu, ekki
heldur í hrejdingu, sem kenndi sig við hlutleysi, lýðræði og frið.
Póhtísk fortíð Vigdísar var mjög til urnræðu í forsetakosningunum árið
1980. Ymsir kjósendur lýsm því yfir að þeir gæm ekki hugsað sér að kjósa
hana sem forseta vegna afstöðu hennar til NATO og Bandaríkjahers.64
Vigdís afiieitaði aldrei skoðunum sínum, enda hafði hún ásamt fleirum ít-
rekað kröfuna um uppsögn vamarsamningsins við Bandaríkin og brottför
hersins með opinberri áskorun á fullveldisdeginum 1. des. árið 1973.6:1
I viðtali sem birtist í Morgunblaðinu rétt fyrir kosningarnar lýsti Vigdís
stjórnunaraðferðum sínum en hún hafði þá verið leikhússtjóri Leikfélags
Reykjavíkur í átta ár. I viðtalinu sagði Vigdís m.a.:
I störfum mínum hingað til hef ég leitazt ríð að kynna mér
málavexti eins ýtarlega og kostur er. Eg hef ekki hikað við að
leita ráða þegar lausnir liggja ekki í augum uppi, en endanleg-
ar ákvarðanir er ég vön að taka sjálf. Yrði ég kjörin forseti Is-
lands héldi ég áfram að hafa þann hátt á. Pólitísk úrlausnarefhi
á borð við stjórnarmyndun eða lausn stjórnarkreppu held ég
varla að nokkmm dyttd í hug að leggja til adögu við nema í
samráði við aðra. A þessari stundu gæti ég nefnt þér með nafni
það fólk, sem ég mundi hafa samráð við, en það fólk er úr öll-
um stjórnmálaflokkum, auk forvígismanna úr helztu arnnnu-
greinum.66
63 Þjóðviljiim 15. september 1960, bls. 4.
64 Rósa Erlingsdóttir, „25 ár frá kjöri Vigdísar", 19. jiím' 2005 -Ainit Kvenréttindafé-
lags Islands, 54. árgangur, bls. 18-19.
65 Valur Ingimundarson, Uppg/ör við umheiminn, bls. 281.
66 Aslaug Ragnars, ,JVIanneskjuleg ábyrgð skiptir mestu“, Morgunblaðið 24. júní 1980.
164