Tímarit Máls og menningar - 01.05.1973, Qupperneq 16
Tímarit Máls og menningar
henni í gær það litla, sem hún mundi. Á morgun fer eg til Kjartans Olafs-
sonar læknis og skrifa alt, sem hann getur sagt. Hann bjó í Unuhúsi á ár-
um þeirra Sveins og Tryggva.
Eg heimsótli tengdaforeldra þína daginn, sem eg kom af skipsfjöl. Hófst
þá brátt sá poletíski uppsteytur. En ekki varð hann harður, því að mér
heyrðist, að þau væru nú búin að missa alla trú á framtak einstaklingsins.
Þau töluðu við mig nærri því eins og þau væru socialistar. - Guðrúnu litlu
hefi eg ekki séð.
í kvöld kom eg suður í Gróðrarstöð og sat þar 3 klukkutíma. Þar var
poletík á dagskrá. Einari þykir þú æstur. Hann er heldur Kjerulfs megin í
spítalamálinu. Hafði ekki séð svar þitt. Eg tók hann ofurlítið til bæna. Björn
Jakobsson virðist aftur á móti vera hálfgerður socialisti. Ekki þykir mér
sennilegt, að kona Einars kjósi A-listann. Hún hefir verið að braska í því
í alt sumar, að Alþýðublaðið yrði gert rækt af heimilinu, en Einar verið
heldur á móti því. Hún hefir rótgróna lítilsvirðingu á Jóni Thoroddsen.
Segir hún, að stjórnmálagreinar hans séu mjög auðvirðilegar. En eg hrós-
aði öllum ritsmíðum Jóns upp í hástert og sagði sögur af dýrð hans vestra.
Var hann álitinn meiri maður, þegar eg fór.
Nokkur orð um lækningar Abrams. Ibsen sagði mér, að læknirinn á
Sauðárkróki hafi sent Kristjáni Arinbjarnarsyni í sumar margar ritgerðir
um lækningar Abrams. Ritgerðir þessar voru sérprentun úr Pears Magazine,
í einu hefti, á stærð við Eimreiðarhefti. Sumar eru eftir lækna. Ein af rit-
gerðunum er eftir Upton Sinclair og heitir: The house of wonder. Ibsen
sagðist hafa lesið allar ritgerðirnar. Er þar lýst lækningum Abrams all-
nákvæmlega með skýrslum og tölum og taldar óyggjandi. Ibsen segist vera
sannfærður um, að þær séu ekta. Upton Sinclair dvaldist hjá Abrams í
12 daga og athugaði læknatæki hans og aðferðir. Nú hefir hann skrifað
læknum í Ameríku og bent þeim á, hvort þeim finnist ekki ábyrgðarhluti að
láta fólk hrynja niður úr kvalafullum sjúkdómum, sem lækning sé fundin
við. En læknarnir eru dúmir og tregir, en segja þó sumir, að rétt sé að
rannsaka þetla. Abrams kvað sjálfur vera mjög yfirlætislaus. Áhöld lætur
hann þá hafa, sem vilja, en vill þó helzt, að þeir læri að fara með þau áður,
því að annars sé ekki víst, að þau komi að fullu gagni. Hann hefir stöðugt
hjá sér um 300 lækna. Geta má þess, að Abrams er Gyðingur. Einu merki-
legu tóli sagði Ibsen mér frá meðal uppfundninga Abrams, sem eg hafði
ekki séð getið um. Það er eins konar rithandar lesari. Þegar verkfæri
þetta er sett í samband við rithönd manns, sýnir það nákvæmlega karakter
6