Tímarit Máls og menningar - 01.05.1973, Qupperneq 38
Tímarit Máls og menningar
hátta, hópar þessara voru sendir í kynningarferðir til ýmissa fræðslustofnana
í Bandaríkjunum í þeim tilgangi. Þannig var reynt að ná tangarhaldi á vænt-
anlegum fræðurum og ekki sparaði viðreisnarstjórnin lipurðina til að þetta
mætti takast. Enn þann dag í dag ríkir sú skoðun meðal Sj álfstæðisforust-
unnar og margra smáborgara, að námskeiðsnám og háskólanám í Banda-
ríkjunum yfirleitt sé jafngilt námi i Evrópulöndum, en um þá skoðun eru
þeir einir í Evrópu. Sama gildir um þá skoðun þeirra að Bandaríkin séu „for-
ustuland frelsis og lýðræðis“. Aróður bandarískra stjórnvalda og íslenzkra
leppa þeirra í þessu efni bar vissulega talsverðan árangur, t. d. gerðist
það á sjöunda tug aldarinnar að skólayfirvöld smnra skóla beindu skóla-
ferðalögiun að afloknum prófum á Keflavíkurflugvöll. Þessi innrætingarað-
ferð varð þó ekki almenn, aðeins stunduð af þeim, sem voru móttækilegastir
sökum meðfæddrar einfeldni fyrir bandarískri innrætingu. Ef litið er til
tímabils viðreisnarstj órnarinnar sem heildar, þá virðist innrætingarherferðin
ekki hafa náð þeim árangri sem ætlað var, sem má marka af stöðugt dvínandi
fylgi þess flokks, sem gerði leppmennskuna að höfuðmarkmiði stjórnmála-
stefnu sinnar (ásamt Alþýðuflokknum).
Hugmyndir Sjálfstæðisflokksins um fjárhag og getu Bandaríkjanna eru
talsvert á eftir tímanum. Eins og allir vita er staða dollarans slík, að öðru
hvoru verða Evrópuþjóðir að gera sérstakar ráðstafanir til þess að styrkja
stöðu hans, en í hugmyndaheimi „flokkshálfvita" Sjálfstæðisflokksins er allt
óbreytt í þeim efnum.
Aðferðir Sjálfstæðisflokksins til þess að halda völdum og áhrifum byggj-
ast og byggðust mjög á áróðri málgagna flokksins, Morgunblaðsins og
Vísis, þó eru blöðin ekki eign flokksins, en því er gjarnan barið við, þegar
blaðamennska þessara blaða er í þá veru, að jafnvel Sjálfstæðismenn vilja
ekki samþykkja. Oft virðist sem blöðin og þá sérstaklega Morgunblaðið og
eigendur þess eigi Sjálfstæðisflokkinn og aldrei skerst í odda milli þessara
aðila svo að mark sé á takandi. Aróður Morgunblaðsins fyrir „sjálfstæðis-
stefnunni“ er alltaf á því stigi, að ætla mætti að Sjálfstæðismenn væru á
lægra vitsmunastigi en almennt gerist um fólk upp og ofan. í krafti ríkis-
valdsins, gat flokkurinn haldið utan um fylgi sitt með ýmsum ráðum og
með beitingu óttans vannst talsvert. Rússagrýlan var þar efst á blaði. Róg-
burði um hættulega pólitíska andstæðinga var og er beitt. Alræmdasta dæmi
um slíkt áður fyrr, var þegar geðlæknir nokkur var fenginn til þess að full-
yrða að Jónas Jónsson frá Hriflu væri geðveikur. Skrílofsóknir Sjálfstæðis-
manna á hendur Tryggva Þórhallssyni voru gott dæmi um aðferðir flokks-
28