Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.1973, Page 67

Tímarit Máls og menningar - 01.05.1973, Page 67
Úr dagbók (II) gerð í anda óskhyggj unnar, að ómögulegt er annað en þykja vænt um hana. Og hún fer vel. - Hvers vegna skyldu engar sögur mega fara vel? En það eru mörg orð í þessari bók, sem líkari eru því að vera tínd upp úr Blöndal en þau séu mælt fram af vörum alþýðufólks nútímans, og bregða því eins og skini grobbmennsku á ritfærni höfundarins: — Sjáið hvað ég er lærður? — Þetta er þó kannski kjánalegt hugarfóstur mitt eitt saman. Höf- undinum er sennilega hugleikið að koma sem mestum auði tungtmnar til skila, og víst er það lofs vert, eða kannski ekki lofs vert, kannski ekki einu- sinni umtalsvert, því, ætti það ekki að vera aðal hvers höfundar, að auðga tungumál okkar svo sem kostur er? Mér er hlýtt til Kristmanns síðan hann skrifaði ritdóm um fyrsta kvæða- kver mitt: í fölu grasi, því innanum mikið moldviðri af aðfinnslum gagnvart þjóðfélagslegri afstöðu minni og klaufalegri gerð kvæðanna, þá fer hann þó hlýlegum orðum um ýmislegt, sem þar er að lesa. Já, þetta skáldverk hans á sér ekki brotalöm, en er helzti barnalegt innan- um og saman við og alltof hlaðið brennivínsþorsta og kjánalegri karlmennsku eins og þeirri sem konur lágu flatar fyrir upp í sveit þegar ég var ungur. Kristmann er afbragðs lipur og hjartalilýr reyfarahöfundur. 65 Fólkið hér, það er ekki allt saman fátækt fólk. Sumir eiga sér skektu og hrognkelsanet, sinnir drossíu, og til eru þeir, sem þjóta milli húsa til að rukka inn leigur, meðan ég hef ekki efni á að kaupa mér skyrtu. Nei, það eru ekki allir sem þurfa að standa í keng af því að þá tekur í hjartað að eiga ekki aura fyrir jarðarförinni sinni þegar þar að kemur. Ég fer nú bráðum að losna úr því gróðahyggju foraði, Guði sé lof og systkinum mínum fyrir það að ég held mér hafi tekizt að nurla saman í athöfnina, en anzi var það örðugt. - Ætli ég hafi ekki drukkið einum of mikið um dagana og liðsinnt vinum mínum, rónunum, til að gleðja sín grátandi hjörtu? Nú er langt síðan ég hef fengið mér einn gráan. Mætti jafnvel ætla ég væri alveg hættur. — Æi já, svona langt var ég leiddur. - Það er ekkert sport að brjótast upp úr feni tortímingarinnar án þess að hafa nokkru sinni beðið guð að hjálpa sér. Ekki veit ég til hvorrar hliðarinnar mundangið kann að hallast, þegar syndum mínum og sakleysi verður komið fyrir í vogarskálum dómarans mikla. En eitt veit ég: Aldrei verður borið á brýn, að ég hafi rukkað inn gjafir mínar í skjóli páskaeggj asölu, eins og Kiwanisklúbburinn er að gera 57
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.