Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.1973, Page 81

Tímarit Máls og menningar - 01.05.1973, Page 81
Af palestínskum sjónarhól Gyðingur? Hver eru séreinkenni Gyðinga. Hvað er eiginlega Gyðingur? Þessari spurningu er ekki auðsvarað. Augljósasta svarið væri á þessa leið: Gyðingur er sá sem játar Gyðingatrú. Við sjáum þó strax, hve þetta svar er yfirborðskennt, ef við tökum einfalt dæmi til samanburðar. Við skulum spyrja sem svo: Hvað er snigill? Sambærilegt svar við það sem að framan greinir væri þá á þessa leið: Snigill er dýr, sem hefst við í snigilsskel. Þetta svar er ekki alls kostar rangt, en það er sannarlega ekki heldur full- nægjandi, því að snigilsskelin er aðeins einn hluti af dýrinu sjálfu. Á sama hátt er Gyðingatrúin aðeins einn hluti af einkennum Gyðingasamfélagsins. Auk þess er vitað, að snigillinn getur farið úr skelinni án þess að hætta að vera snigill. Gyðingur sem gengur af trúnni er í svipaðri aðstöðu. Hann heldur áfram að vera Gyðingur. Þau bönd, sem tengt hafa Gyðinga um árþúsundir og tengja þá enn, eru öðru fremur lýðræðislegar hugmyndir þeirra um þjóðfélagsréttlæti, samíara hugsjónum um samhjálp og umburð- arlyndi meðal allra manna. Jafnvel elztu trúarrit Gyðinga eru gegnsýrð þess- um félagslegu hugsjónum og þær liafa verið áhrifamiklar í kristinni trú og islam og þær hafa mótað til betri vegar þjóðfélagsbyggingu þá, sem mikill hluti mannkyns býr við. Kemur þar fljótt í hugann hinn vikulegi hvíldar- dagur - siður sem tekinn var upp af Gyðingum og orðið hefur öllu mann- kyni ómetanleg blessun. Menn eins og Móses, Spinoza og Karl Marx lifðu allir og fórnuðu sér fyrir hugsjónir jafnréttis og þj óðfélagsréttlætis - þótt þeir séu hver öðrum ólíkir um margt - og það var arfur feðranna sem leiddi þá út á þessa grýttu braut.“ Þannig farast Albert Einstein orð. Ég hef fjölyrt svo mjög um Gyðinga, hverjir þeir raunverulega séu, sem megi kallast því nafni, vegna þess að það er útbreidd skoðun, að þeir séu hin sama þjóð eða jafnvel kynþáttur, sem hrakinn var úr landi sínu fyrir 1900 árum og sé nú loks að snúa heim til síns eina sanna föðurlands að taka við lögmætum arfi. Ráðamenn Ísraelsríkis, fólk eins og hin gáfaða og mikilhæfa kona, Golda Meir, sem er fædd í Ukrainu og alin upp í Banda- ríkjunum, eða utanríkisráðherrann, Abba Eban, sem fæddur er í Suður- Afríku og menntaður í Oxford í Englandi, eru þó býsna ósannferðugir erf- ingjar þessa lands; tengsl þeirra við sögu þess og menningu eru allt önnur en þess fólks, sem landið hefur byggt um aldaraðir og fram á okkar dag, og allt önnur en við hinn krislna menningarheim, sem þau eru vaxin upp úr. Ýmsum oddvitum ísraelsmanna er þó mjög í mun, að þeirri mynd sé haldið á loft, að ísraelsmenn samtímans séu beinir afkomendur hinna fornu Hebrea, sem nú séu að endurheimta forn vé og óðul - jafnvel þótt þau fals- 71
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.