Tímarit Máls og menningar - 01.05.1973, Side 82
Tímarit Máls og menningar
rök sem færa þarf slíkri fullyrðingu til sönnunar, beri keim þeirrar kynþátta-
kenningar, sem Gyðingum varð svo dýrkeypt í Þýzkalandi á 4. og 5. áratug
aldarinnar. Enn fráleitari eru þó hugmyndir þeirra manna, sem ætla að ein-
hver yfirnáttúrleg þáttaskil verði í heimsrásinni og sögu manna við það eitt,
að Gyðingar snúi aftur til Palestínu og setji þar á stofn ríki sitt.
Forstöðumaður þeirrar stofnunar við Lundúnaháskóla er fæst við rann-
sókn á sögu og menningu hinna Nálægari Austurlanda, prófessor Alfred
Guillaume, segir í grein, sem hann nefnir: Zionistar og Bihlían: „Það virð-
ist von sumra manna, að gullöld mtmi á dularfullan hátt renna upp á jörðu
hér við það eitt, að hægt væri að senda Gyðingana aftur til Palestínu og
þeir mynduðu þar sitt eigið ríki. Slíkar hugmyndir eru rangtúlkun á spá-
dómum Gamla testamentisins, sem segja fyrir tnn heimkomuna frá Babylon
og öllum löndum þar sem Gyðingar væru í útlegð. Og þessir spádómar rætt-
ust. Gyðingarnir sneru aftur til Júdeu, þeir endurreistu múra Jerúsalems-
borgar og byggðu musterið að nýju, og eftir að gengið hafði á ýmsu um
skeið, tókst þeim um skamma hrið að vinna sjálfstæði og landaforráð á
Makkabeatímanum. Þannig hafa spádómarnir um heimkomuna þegar rætzt
og þeir verða ekki uppfylltir öðru sinni. í helgiritasafni Gamla testament-
isins er engin spá um nýja heimkomu eftir endurkomuna úr útlegðinni í
Babylon. Þar kemur tvennt til. í fyrsta lagi það, að eftir útlegðina
sneru allir Gyðingar, sem þess óskuðu, aftur til Landsins helga, þótt hinir
væru fleiri, sem kusu að halda kyrru fyrir þar sem þeir voru komnir í dreif-
ingunni, diaspóra, og urðu síðar kjarninn í kristinni kirkju, og í öðru lagi
þá dóu hinir síðustu spámenn Gamla testamentisins mörgum öldum fyrir
eyðingu Jerúsalem, árið 70 e. Kr. Þannig eru þessir spádómar þegar
fram komnir og þeir menn, sem á fölskum forsendum notfæra sér vald
Biblíunnar til þess að viðhalda ranglæti í Landinu helga, hljóta að teljast
ganga lengra en nokkrir aðrir á undan þeim í þvi sem nefnt hefur verið „að
vitna í Biblíuna djöflinmn til framdráttar.“ Þetta segir prófessor Guillaume.
Ég hef nú reynt að svara tveim þeirra spuminga, sem bornar voru upp
hér að framan varðandi Palestínubúa og Gyðinga. - Palestína var arabiskt
land árið 1917 og hafði verið það í 2000 ár, byggð Aröbmn að langmestum
hluta. Á ég þá við það, að íbúar landsins töluðu arabíska tungu og litu á
hina arabísku menningararfleifð sem sína. í landinu bjuggu þá 650.000
íbúar, þar af 600.000 Arabar eða 91%, en aðeins 45.000 Gyðingar, sem
fyrir löngu höfðu aðlagazt menningu þjóðarinnar og tekið upp siðu hennar,
þótt þeir að sjálfsögðu héldu fast við trú sína, Gyðingdóminn, enda flestir
72