Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.1973, Page 87

Tímarit Máls og menningar - 01.05.1973, Page 87
Af palestínskum sjónarhól örsnauðir fellahins, landbúnaðarverkamenn, erjuðu lendur þeirra í Palestínu. Mjög er til efs, að þessi landsala fái staðizt að islömskum lögum. Hin isl- ömsku lög, sharia, geyma ströng ákvæði um það, að land geti ekki verið nema takmarkaðan tíma í eigu þess er ekki erjar það, jörðin tillieyri fyrst og fremst þeim er nytji hana. En hér réðu peningarnir eins og löngum, og Rothschild barón festi kaup á þúsundum hektara lands og fékk það innflytj- endum frá Austur-Evrópu til ábúðar og eignar. Hinir arabisku fellahins, land- búnaðarverkamenn, voru reknir burt, þeirra var ekki lengur þörf; leið þess- ara uppflosnuðu bænda lá oftast til borganna í Palestínu, þar sem þeir urðu vísir nýrrar öreigastéttar verkamanna. Vald margra hugmynda yfir hugum okkar manna byggist oft á fáfræði okkar. Því hefur meðal annars verið haldið fram, að höfuðstyrkur Zionism- ans byggðist á þekkingarleysi á sögu Gyðinga og andsemítisma. Zionisminn væri flótti frá raunveruleikanum, hann leysti alls ekki hinn raunverulega vanda Gyðinga, því hann gerði sér enga grein fyrir orsökum antisemítismans. Lausn þessara vandamála verði að leita í þj óðfélagsbyggingu hvers tíma og stöðu Gyðinga í viðkomandi þjóðfélögum. Þeir marxistar, sem reynt hafa að skýra þessi vandamál á grundvelli þj óðfélagskenninga sinna, hafa eflaust komizt næst kjarna málsins, þótt þeir að sjálfsögðu vilji gera lítið sem ekkerl úr Jreim trúarlegu þáttum sem Zionisminn skreytir sig með - og er óneitan- lega á ýmsan hátt sprottinn upp af. Ég hef áður rætt um það, að Gyðingar væru hvorki kynþáttur né þjóð í venjulegri merkingu þess orð, heldur væri Gyðingnum ætlað að vera blys- beri réttlátra þjóðfélagshátta og siðrænnar menningar meðal þjóða heimsins - þetta er hugmynd allra frjálslyndra trúarleiðtoga Gyðinga á 20. öld. Gyð- ingdómurinn á að verða alþjóðlegt afl, er ekki byggi lilveru sína á valdi, né styðjist við ríki og lier, heldur grundvallist á eingyðistrúnni og ávöxtum hennar, siðrænni menningu. Zionisminn hefur því miður tekið aðra stefnu og ef til vill aðra stefnu en ýmsir fylgismenn hans höfðu ætlað honum í upphafi. Hugmynd Herzls um stofnun ríkis Gyðinga í Palestinu, ríkis er styddist við lögreglu og her og ætti sér sérstök landamæri og hefði að bakhjarli það vald, sem þjóðfélög samtímans grundvallast á, var ekki og er ekki í samræmi við skoðanir og viðhorf frjálslyndra Gyðinga, þótt þessari hugmynd yxi svo ásmegin eftir 1945 að hún yrði að veruleik. - Svo ég vitni enn til slcrifa Alberts Einsteins, þá fjallar hann af merkilegu innsæi um þetta í grein er hann ritar árið 1938; þar segir svo: „Ég kysi miklu heldur, að viðunandi samkomulag næðist við Araba mn 77
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.