Tímarit Máls og menningar - 01.05.1973, Síða 89
Aj palestínskum sjónarhól
raynd. Sexdagastríðið getur því reynzt Israelsmönnum í framtíðinni þeirra
stærsti ósigur, því að enginn má ætla, að hinar fjölmennu arabísku þjóðir
lúti um alla framtíð ofurvaldi ísraelsmanna á þessum slóðum. Það er ekki
einungis gagnstætt allri þróun mála í heiminum í dag, heldur óraunsæir
draumórar, þegar höfð er í huga sú glæsta fortíð, sem hin islömsku ríki eiga
sér og stendur þeim svo lifandi fyrir sjónum nú á okkar dögum, þegar þjóð-
ernisleg vakning fer eldi um þessar fornu menningarþjóðir. Það er ef til vill
stærsta ógæfa hinnar zionistisku tilraunar, að hún verður að veruleik á
þeim tíma, er ríki þriðja heimsins svonefnda eru að hrista af sér aldagamalt
ok evrópskrar nýlendukúgunar, og því verður hið nýja ríki ísraelsmanna
fullkomið tímaskekkjufyrirbrigði á þessum slóðum, fulltrúi hins liðna, sem á
að hverfa, fulltrúi þeirra afla sem þyngsta sök eiga á aldalangri niðurlægingu
hins islamska heims síðustu aldirnar. „Styrjaldarrekstur hinna hrokafullu
þj óðrembingsmanna í ísrael,“ segja Arabar, „hefur fær okkur heim sanninn
um það.“
Isaac Deutscher hefur líkt Israelsmönnum við Prússa undir stjórn Bis-
marks. Á sama hátt sigruðu Prússar fyrir hundrað árum alla nágranna sína
í hverri styrjöldinni á fætur annarri - Dani, Austurríkismenn og Frakka. Af-
leiðing þeirrar sigurgöngu varð sú, að þeir töldu sjálfa sig ósigrandi, settu
allt sitt traust í blindni á her sinn og vopnabúnað, og belgdust upp af þjóð-
rembingshroka og fyrirlitningu á öðrum þjóðum. En staða hins þýzka ríkis
var allt önnur en Ísraelsríkis í dag. Nágrannar hins þýzka ríkis voru sundr-
aðir og sjálfum sér sundurþykkir og reyndist það valdhöfum Þýzkalands
auðvelt að etja þeim hverjum gegn öðrum, samkvæmt hinni gömlu reglu
Rómverja: Divide et impera, deildu og drottnaðu. Þessu bragði hafa ráða-
menn í ísrael einnig beitt gegn Aröbiun, en hún hlýtur að bregðast þeim fyrr
en síðar. Allar styrjaldir ísraelsmanna við nágrannaríkin og herhlaup frá
1948 hafa sameinað þá enn betur en áður var, og afleiðing ]>eirrar þróunar
boðar óhjákvæmilega feigð Israelsríkis. Slíkri sigurgöngu hafa Þjóðverjar
lýst með orðunum „Man kann sich totsiegen“: „Maður getur sigrað sig í
hel!“ - Og óttinn við shka lykt mála er farinn að gera vart við sig í ísrael
fyrir löngu - allur þjóðrembingurinn, hatrið á Aröbunum, og hinar villi-
mannlegu hefndaraðgerðir gegn þeim, eru órækast vitni um ótta ísraelsmanna
og vonda samvizku.
Þannig hefur Zionisminn, sú þj óðernishreyfing, sem yngst er í Evrópu og
varð til og mótaðist sem pólitísk lireyfing í lok síðustu aldar, reynzt haldlítil
sem lausn á vandamáli Gyðinga í heimi 20. aldarinnar. Markmið hreyfing-
79