Tímarit Máls og menningar - 01.01.1988, Page 13
Ádrepur
Einar Már Guðmundsson
Tossabandalagið
Útlendingur sem hafði verið búsettur hér lengi var eitt sinn spurður hvernig
veðrið væri á Islandi. Hann hugsaði sig um í dálitla stund en svaraði svo: A
Isiandi er ekken veður, aðeins sýnishorn af veðráttu. Það þarf ekki að horfa
lengi á veðurkortin í sjónvarpinu til að skilja þetta svar; manni nægir að dvelja
utandyra einn dag.
Það er heldur ekki mjög flókið að færa þetta sama svar yfir á ýmis önnur
svið þjóðlífsins, meðal annars ástand menningarmála. Munurinn er þó sá:
Veðráttan birtir okkur sýnishorn sín ómenguð en í menningar- og þjóðmálum
ertu allt í einu staddur á rýmingarsölu.
Eða eins og segir í ljóðinu:
„A aðaltorginu er rýmingarsala á möguleikum . . .“
Hæst ber auðvitað þá menningu sem hefur verið að ryðja sér til rúms á
undanförnum árum og er almennt nefnd plötusnúðamenningin, en hún er það
ný af nálinni að enn er ekki hægt að slá henni upp í orðabókum.
Þó vita menn að hún er skilgetið afkvæmi þenslunnar í þjóðfélaginu, einsog
auglýsingastofa í laginu, og stjórnmálamaður í framkomu og henni var ágæt-
lega lýst í orðum sem einn hinna bráðsnjöllu sérfræðinga atvinnulífsins hafði
um hugsanlegan stuðning atvinnuveganna við menningu og listir en að hans
mati kom slíkur stuðningur vel til greina ef atvinnulífið gæti hagnýtt sér hug-
myndir listamannanna, til dæmis í húsgagnaiðnaði.
Með öðrum orðum: A menninguna er litið sem eins konar hönnunarráðgjöf
og mætti ef til vill benda viðkomandi aðilum á að vísindaskáldsögur eru barma-
fullar af frumlegum hugmyndum varðandi húsbúnað og hýbýli, einkum úti í
himingeimnum, en þar má vel hugsa sér að ný markaðssvæði opnist þegar
geimvarnaáætlun Bandaríkjamanna nær sér á strik og dollarinn flýgur til
tunglsins.
Alveg einsog plötusnúðurinn sem verður að fleygja gamla vinsældarlistanum
þegar sá nýi kemur, þannig er í menningarlegu andrúmslofti samtímans aðeins
lögð áhersla á tímabundið notagildi listarinnar. Hún er aðeins til á meðan gengi
3