Skírnir - 01.01.1969, Page 166
160
BJÖRN K. ÞÓRÓLFSSON
SKÍRNIR
ágúst „til þess að ræða sér í lagi um stjórnarskipunarmálið og önnur
þjóðmál vor“. Skora þeir á kjósendur í kjördæmi hverju að senda
á fundinn einn til tvo fulltrúa, er eigi sé alþingismenn, enda telja
fundarboðendur víst, að alþingismenn sæki fundinn eigi að síð-
ur.
A undanförnum árum hafði blöðum hér á landi fækkað nokkuð,
og mundu þó nútímamenn segja, að ekki væri blaðakostur fjölskrúð-
ugur fyrir. Suðri og Fróði voru hættir að koma út, og sama máli
gegndi um Austra (gamla) og voru Austfirðingar blaðlausir um
skeið.
Þar sem Suðri og Fróði voru dauðir var ekkert blað líklegt til
andstöðu gegn Þingvallafundi eða þeirri stefnu, sem hann var boð-
aður til að halda fram, enda tóku öll blöð fundarboðinu vel. ísafold
minnir að vísu á tillögur sínar að bíða með fundinn til næsta árs og
halda hann rétt fyrir þing 1889, en segir, að nú sé málið útklj áð og
vonandi sé, að enginn láti það eitt standa fyrir greiðum og góðum
afskiptum af Þingvallafundi, þó að honum hafi sýnzt annar fundar-
tími hentugri.
Eins og vænta mátti studdu Þjóðólfur og Norðurljósið forgöngu-
menn Þingvallafundar mjög eindregið og töldu sjálfsagt að sendir
yrðu fulltrúar á Þingvallafund úr öllum kjördæmum á landinu. Um
fundartímann segir Þjóðólfur: „Það getur að vísu ýmislegt mælt
með því að hafa fundinn að ári, en það mælir ekki síður margt með
því að hafa hann í sumar. Það er þá tími til að ræða um aðgjörðir
fundarins til næsta þings, áhrif fundarins hafa tíma til að verka
á landsmenn fyrir næsta þing, og á framkomu þingmanna á næsta
þingi hefur fundurinn að öllum líkindum sömu áhrif eins og þó að
hann hefði verið haldinn rétt fyrir þing og ef til vill meiri, ef kjós-
endurnir fyrir áhrif fundarins leggja meira að þingmönnum sínum
að framfylgja vilja sínum á þinginu.“
Fjallkonan segir 30. júní í grein um Þingvallafund, að á Alþingi
hafi bæði meirihlutinn og minnihlutinn í stjórnarskrármálinu borið
fyrir sig vilja þjóðarinnar. „Skeri hann (Þingvallafimdur) nú úr,“
segir blaðið. Þegar kunnugt var orðið um allar kosningar til Þing-
vallafundar, segir Fjallkonan 18. ágúst, að þjóðin hafi sýnt þá rögg
af sér að lýsa enn af nýju yfir vilja símun í stjómarskrármálinu.
Gleðilegt sé, að þjóðinni endist svo vel þol og kjarkur til að halda