Skírnir - 01.01.1969, Blaðsíða 215
SKÍRNIR
ÞINGVALLAFUNDUR 1888
209
Fundur var settur aftur þriðjudaginn 21. ágúst kl. 9% fyrir há-
degi.
Þá var fyrst á dagskrá ályktunarumræða um kvenfrelsismálið.
Framsögumaður, Hannes Hafstein, sagði nefndina einhuga um
það, að kvenfrelsið væri tímans krafa, mannfrelsisins krafa, og að
það væri skylda allra að styðja að því. En ýmsir erfiðleikar væru á
að greiða fram úr málinu, einkum vegna eldri laga, sem byggð væru
á gamla horfinu og gömlum hugsunarhætti. Þess vegna væri ekki
hægt að fara út í smáatriði á þessum fundi, heldur semja almenna
áskorun til þingsins um að taka málið fyrir eins og nefndin hefði
gert, og hefði hún sérstaklega lagt áherzlu á þrjú atriði, eins og til-
laga hennar bæri með sér.
Tillaga nefndarinnar hljóðaði svo:
„Þingvallafundurinn skorar á Alþingi að gefa málinu um j afnrétti
kvenna við karla sem mestan gaum, svo sem með því fyrst og fremst
að samþykkja frumvarp, er veiti konum í sjálfstæðri stöðu kjör-
gengi í sveita og safnaðamálum, í öðru lagi með því að taka til ræki-
legrar íhugunar, hvernig eignar og fjárráðum giftra kvenna verði
skipað svo, að réttur þeirra gagnvart bóndanum sé betur tryggður
en nú er, í þriðja lagi með því að gjöra konum sem auðveldast að
afla sér menntunar.“
Tillagan var samþykkt í einu hljóði.
Fjórða mál á dagskrá fundarins var afnám amtmannaembœttanna.
Allir, sem töluðu í því máli, virðast hafa verið samdóma um það,
að þau væru óþörf. Umræður snerust að nokkuru leyti um þá kröfu
Austfirðinga að fá sérstakt amtsráð fyrir fj órðung sinn. Árni Árna-
son, sem talaði fyrstur, síra Sigurður Stefánsson, alþingismaður, og
Pétur Jónsson vildu, að fundurinn skoraði á Alþingi að afnema
amtmannaembættin, og tók Pétur að sér að vera flutningsmaður
málsins. Síra Sigurður minnti á það, að þrjú þing að undanförnu
hefðu viljað afnema þau. Páll Pálsson, prestur, hélt því fram, að af-
nám þeirra væri innifalið í stjórnarskrárendurskoðuninni, og væri
slík áskorun því óþörf. Hann kvað sér vera falið af Austfirðingum að
halda því fram, að þeir fengju sérstakt amtsráð fyrir Austfirðinga-
fjórðung og bar fram um það tillögu „í viðbót við tillöguna um af-
nám amtmannaembættanna“, eins og hann komst að orði. Þórður
14