Skírnir - 01.01.1969, Síða 228
222
BJÖRN K. ÞÓRÓLFSSON
SKÍRNIR
árum, svo og þess, að konungur þeirra og vor, Kristján hinn níundi,
hefði setið að völdum fullan fjórðung aldar, hinn eini konungur, er
komið hefði hingað til lands „og á þennan fornhelga stað“ og sýnt
þess margan vott, að hann bæri til vor mjög hlýjan hug. „Vér vilj-
um því,“ sagði fundarstjóri, „við þetta tækifæri allir óska: Lengi
lifi konungur vor, Kristján hinn níundi.“ Tóku fundarmenn undir
það með níföldu „húrra“.
Því næst sagði fundarstj óri, tæpri stundu fyrir miðaftan, fundi
slitið.
1 Hér mun átt við Arnarstapa- og Skógarstrandarumboð. Sbr. Þjóðólf ló.apríl
1887, þar sem skuldin af þvi umboði er lögð að jöfnu við hina alkunnu sjóð-
þurrð hjá Fensmark, bæjarfógeta á ísafirði.
2 Höfundur þessarar greinar mun vera Jón A. Hjaltalín. Sbr. framboðsræðu
hans á kjörfundi á Akureyri 5. júní 1886, sem birt er í Fróða 23. júlí sá.
Þar er stungið upp á stjórnarskrárbreytingum til að auka vald Alþingis
líkt og fram á var farið í frumvarpi endurskoðunarmanna 1887, án þess að
breyta stjómskipunarlaginu að öðru leyti. í greinaflokki Amljóts Ólafs-
sonar „Um stjórnarskrárbreytinguna 1885“ í Fróða 25. janúar - 15. apríl
1886 er ekki farið fram á stjórnarskrárbreytingu, en Arnljótur vill auka
vald landshöfðingja með öðrum aðferðum og gagnrýnir ákaft stjórnar-
skrárfrumvarp Alþingis 1885, sem samþykkt var óbreytt á aukaþingi 1886.
3 Sbr. Odd Didriksen: Saga 1961 bls. 254-55.
4 Alþt. 1887 A bls. 322-23. Sbr. kafla úr fréttabréfi frá Reykjavík í Dagblað-
inu í Kaupmannahöfn 12 júlí 1887 sem þýddur er í Þjóðólfi 2. ágúst. Frétta-
ritari Dagblaðsins í Reykjavík mun hafa verið dr. Jónas Jónassen.
5 í bók Björns Þórðarsonar „Alþingi og frelsisbaráttan 1874-1944“ bls. 43
eru kjördæmi, sem halda vildu stjórnarskrármálinu áfram í frumvarpsformi,
oftalin.
6 Sbr. Fréttir frá íslandi 1887 bls. 5-6, Jón Helgason: Árbækur Reykjavíkur
bls. 224 og Þorsteinn Thorarensen: Eldur í æðum bls. 222-25.
7 Sbr. Fréttir frá íslandi 1887 bls. 7 og Odd Didriksen: Saga 1961 bls. 259-65.
8 Sbr. Odd Didriksen: Saga 1961 bls. 270.
9 Leturbreyting blaðsins.
10 Leturbreyting B. Sv.
11 Sbr. um þessa heimild í 61. grein stjómarskrárinnar 1874 svarræðu Bene-
dikts Sveinssonar gegn Grími Thomsen á aukaþinginu 1886 (Alþt. 1886, B,
108) sem getið er í Skírni 1966 bls. 126.
12 Hér má gera þá athugasemd, að í flokki þjóðkjörinna þingmanna, sem kosn-
ingu hlutu 1886, voru tveir, Grímur Thomsen og Jónas Jónassen, sem alls