Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.1992, Blaðsíða 122
Sigurður Pálsson
Fowler er viðurkenndur fræðimaður á sviði trúarlífssálarfræði og hefur
kennt við Harvard University og Boston College og verið forstöðumaður
fyrir Center for Faith Development við Emory University.
Kveikjan að kerfisbundnum rannsóknum hans á þroskaskeiðum trúar-
innar, sem hófust árið 1972, var starf hans sem aðstoðar-forstöðumaður
Interpreter's House í North Carolina fylki í Bandaríkjunum á árunum 1968-
1969, en þar er boðið upp á framhaldsnám fyrir bæði presta og leikmenn.
Sú venja hafði skapast á staðnum, að þeir sem komu þangað til náms voru
látnir segja ævisögu sína áður en eiginleg kennsla hófst. Þannig fengu
kennaramir betri forsendur til að skipuleggja kennsluna. Þama fékk Fowler
tækifæri til að hlýða á meira en 200 manns rekja lífsferil sinn. Það vakti
athygli hans að ævisögumar höfðu að geyma ákveðna drætti sem vom þeim
sameiginlegir, þrátt fyrir ólíka reynslu og aðstæður fólks. Þetta vakti áhuga
hans á því að kanna nánar hvort finna mætti ákveðið sameiginlegt mynstur
sem þroski manna fylgdi lífíð á enda.
í leit að merkingu
Fowler segir frá því að hann hafi eitt sinn verið akandi á leið til að stjóma
námskeiði um trú. Á leiðinni dvaldi hugur hans við eftii námskeiðsins og
hvemig hann hafði hugsað sér að hefja það með nokkmm vel völdum
spumingum:
—Hvemig og til hvers er kröftum þínum varið? Hvað er það sem stjómar
og fær besta tíma þinn, mestu krafta þína?
—Fyrir hvaða málstað, drauma, markmið eða stofnanir lifirðu?
—Hvaða öfl em það sem þú óttast mest á lífsgöngunni? Á hvaða öfl
seturðu traust þitt?
—Hveiju eða hverjum ertu skuldbundinn í lífinu? í dauðaniun?
—Með hverjum eða hvaða hópi deilirðu helgustu og leyndustu vonum
þínum varðandi líf þitt og þeirra sem þér er annt um?
—Hveijar eru þessar helgustu vonir þínar, þessi mest knýjandi markmið
og tilgangur lífs þíns?3
Þetta em trúarlegar spumingar. Þær miða að því að hjálpa mönnum að gera
sér grein fyrir hvaða ferli þeir fylgja í þeirri viðleitni að ljá lífi sínu merk-
ingu. Þær þjóna þeim tilgangi að leiða hugann að kjama þess sem ber líf
einstaklingsins uppi. Það á við um gildi og öfl, einstaklinga, málefni og
stofnanir sem mönnum er annt um. Það á við um hugmyndir þær sem menn
hafa um gott og illt og um hið mögulega og líklega sem skuldbindur
einstaklinginn. Allt þetta er uppistaðan í því mynstri sem trú manna er ofin
úr.
Trú hefur ekki alltaf það sem venjulega er nefnt trúarlegt innihald og
stendur heldur ekki alltaf í slíku samhengi. Spumingunum hér að framan er
3 James W. Fowler: Stages ofFaith, Harper & Row Publishers 1981, bls. 3.
120