Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.1992, Blaðsíða 50

Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.1992, Blaðsíða 50
Lone Fatum rými hinni öldraðu konu sem er ekki mannbær lengur því líf hennar sem konu er ekki framar skilgreint kynferðislíf. Vissulega hlýtur konan með blóðlátin viðurkenningu hjá Jesú en staðfesting hennar í frásögninni felur jafnframt í sér félagslegan viðskilnað hennar. Þessa merkingu frelsisfyrir- heitsins og ávarpsins „dóttir“ má ekki að engu gera í útleggingu kvennaguð- fræðinnar af þeirri ástæðu einni að hún sé óhagstæð. Það tilheyrir mati þeirrar ritskýringar sem jákvæð er í garð kvenna og mati þeirrar þýðingar sem vinnan við ótvírætt viðurkennandi sjálfsmyndar- líkön hefur haft, að fólk hefur víðast annars staðar í heiminum kosið að tala um kvenfrelsisguðfræði (feministisk teologi). Það er greinilegt tákn sem bendir bæði til stjómmálalegrar ögranar og hins, að þetta eigi að snúast um guðfræði, sem í hvaða tilliti sem vera skal fæst við konur. Það er ekki aðeins að hún sé iðkuð af konum heldur er hún helguð málefnum og vandamálum sem varða konur sérstaklega og beint takmark hennar er konur í þeim skilningi að það sé viðurkenning kvenna, frelsun og vitundarvakning sem ákvarði hina guðfræðilegu vinnu. Þegar setja átti sérgreina- og rannsókna- sviðinu við guðfræðideildina í Kaupmannahöfn starfsáætlun í fyrsta sinn fyrir alvöra, kusum við sem höfðum af því veg og vanda að nefna hana kvennaguðfræði (kvindeteologi). Undir því heiti hefur verið kennt og rann- sakað frá 1982. Við vildum með þessu heiti afmarka stærra svið og vonuðum að með því mætti hefjast vitundarvakning af umfangsmeiri og blæbrigðaríkari gerð, sem yrði gaumgæfin á kyn. Það sem beinlínis ber í sér neikvætt viðhorf í garð kvenna er því miður, að minnsta kosti jafn umfangs- mikið og hið jákvæða. A hinu guðfræðilega sviði er það því alveg jafn þýðingarmikið að láta sér lærast að grandskoða, með gagnrýnum hætti, nei- kvæða þýðingu kynjamismununar fyrir skipan hins biblíulega kristna heims, eins og að reyna að finna litlar jákvæðar handfestur. Hér snerti ég við viðkvæmu atriði og hér munu viðhorf kvenna- guðfræðinnar greinast til ýmissa átta. Það helgast einmitt af því að guðfræði er tilvistarútlegging. Af þessum sökum er munur á kvennaguðfræðingi og til dæmis fræðakonu sem helgar sig sögu eða bókmenntum. Kvenna-guðfræð- ingurinn er tilvistarlega tengdur rannsóknum sínum og túlkunar-legum afleiðingum þeirra á allt annan hátt. Ef kvennaguðfræðingurinn neyðist, í gagnrýnu starfi sínu, til þess að horfast í augu við það, að öll hin kristna túlkunarhefð, hvort heldur er á texta, kennisetningum eða kirkju, er karlmiðlæg tilvistarútlegging í feðrahverfu skipulagi og stjóm, hvar ætti hún þá að staðsetja sig sem kristna mannvera? Getur hún t.a.m. greint milli forms og innihalds og sagt að kirkjan sé misskilningur en fagnaðarerindið og trúin á Jesúm búi engu að síður að sannleikanum um líf kvenna og sjálfsskilning? Getur hún sagt að það sem Jesús sjálfur sagði og gerði sé það sem máli skipti en allt annað sé aðeins söguleg málamiðlun við þennan heim og skipanir hans? Á því er ekki vafi, að það sem fyrir flestar hófst sem gagnrýnið og nauðsynlegt verkefhi til vitundarvakningar, hefur stig af stigi orðið tilvistar- leg klemma af þeirri gerð sem ekki aðeins snertir afstöðuna til kirkjunnar og þar með möguleikann á að starfa sem prestur t.d. í dönsku þjóðkirkjunni, 48
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148
Blaðsíða 149
Blaðsíða 150
Blaðsíða 151
Blaðsíða 152
Blaðsíða 153
Blaðsíða 154
Blaðsíða 155
Blaðsíða 156
Blaðsíða 157
Blaðsíða 158
Blaðsíða 159
Blaðsíða 160
Blaðsíða 161
Blaðsíða 162
Blaðsíða 163
Blaðsíða 164
Blaðsíða 165
Blaðsíða 166
Blaðsíða 167
Blaðsíða 168
Blaðsíða 169
Blaðsíða 170
Blaðsíða 171
Blaðsíða 172
Blaðsíða 173
Blaðsíða 174
Blaðsíða 175
Blaðsíða 176
Blaðsíða 177
Blaðsíða 178
Blaðsíða 179
Blaðsíða 180
Blaðsíða 181
Blaðsíða 182
Blaðsíða 183
Blaðsíða 184
Blaðsíða 185
Blaðsíða 186
Blaðsíða 187
Blaðsíða 188
Blaðsíða 189
Blaðsíða 190
Blaðsíða 191
Blaðsíða 192
Blaðsíða 193
Blaðsíða 194
Blaðsíða 195
Blaðsíða 196
Blaðsíða 197
Blaðsíða 198
Blaðsíða 199
Blaðsíða 200
Blaðsíða 201
Blaðsíða 202
Blaðsíða 203
Blaðsíða 204
Blaðsíða 205
Blaðsíða 206
Blaðsíða 207
Blaðsíða 208
Blaðsíða 209
Blaðsíða 210
Blaðsíða 211
Blaðsíða 212

x

Ritröð Guðfræðistofnunar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ritröð Guðfræðistofnunar
https://timarit.is/publication/1152

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.