Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.1992, Blaðsíða 191
Eru Guð og „Óvinurinn” sama persónan?
III
Útleggingin eða: Spurninginum merkingu
Inngangur
Hér liggja þá fyrir þessir undarlegu kapítular. Það er margt að athuga ef
ræða skyldi um sögu textans. Við sáum það að frásögnin af hetjudáð
Jónatans, óafvitandi sekt hans, dauðadómi og sýknu hefur kannski í upp-
haflegri gerð sinni verið frásögn af hreysti hans og láni Sáls, en í
núverandi gerð textans, hinni endanlegu gerð, er eins og þessi kapítuli
auki enn á hið vandræðalega eða íroníska við örlög Sáls. Hvað sem því
líður er hann innrammaður af tveimur spámannasögum, 13. kapítulanum,
þar sem Sál virðist brjóta gegn forréttindum hins mikla spámanns og
dómara og er hafnað sem konungi, og 15. kapítulanum, þar sem í mjög
undarlegum texta er greint frá því að hið venjulega spámannlega
höfuðatriði gildir ekki lengur, fyrirgefning og meðalganga eru úr gildi
numdar og Sál er hafnað fyrir það að brjóta gegn hinum grimmilegu
heremlögum um að drepa böm og brjóstmylkinga, konur og karla, unga
og gamla af þeirri þjóð sem sigmð er í stríði guðsins. Þessi styrjaldar-
löggjöf er í Gamla testamentinu sögð vera sett af Yahweh. Og þannig
setur textinn þetta fram, gætum að því. En við vitum að hún var ekki sett
af Guði heldur var þetta ákvæði í gildi með öllum nágrannaþjóðum eins
og Móabssteinninn er okkur traust heimild um.
Merkingin
En hver er merkingin? hljótum við að spyrja.
Fyrst spyrjum við hver merkingin sé innan textanna sjálfra, og er sú
rannsókn bæði semantísk og semíótísk. En síðan verðum við að spyrja um
hina hermeneutísku merkingu, þá túlkunarfræðilegu, til þess að komast að
raun um það hvað þessi texti merkir og guðsmyndin sem þar birtist í ljósi
okkar nútíma.
Við dæmum um allt sem við lesum. Við reynum auðvitað að ganga inn
í hinn foma heim og skilja hann innanfrá. Sá hæfileiki sem til þess þarf
nefnist „empatí” eða innlifunarhæfni. En við reynum líka að skilja hvaða
bókmenntir sem við lesum frá okkar sjónarmiði. Og þá erum við komin
að lokapunktinum í sérhverri gildri meðhöndlun bókmenntatexta og þar
með biblíutexta. Þannig er hermeneutík lokaverkefni ritskýringarinnar.
A. Merkingin innan samhengis textans sjálfs
Boðið um skilyrðislausa hlýðni við vilja Yahweh og lög hans em vel
þekkt öllum sem þekkja Gamla testamentið. Þetta boð þýðir í raun skil-
yrðislausa undirgefni undir spámanninn, þ.e. undir það orð sem hann
flytur. Mörg dæmi em þessa, eins og til að mynda þegar Elísa lætur tvo
skógarbimi rífa í sig drengina sem hrópuðu háðsyrði gegn honum (2Kon
189