Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.2005, Page 34
Upplýsingin
Séra Jón Steingrímsson sá hönd Drottins að verki í öllu því sem gerist. Þess
vegna áleit hann að eldurinn væri af Guði sendur og með þvf að Guð væri
þar að baki, hlyti einhver tilgangur að vera í því. Sá tilgangur virðist vera
tvenns konar. I fyrsta lagi áleit hann Guð vera að tyfta fólk og áminna og
opinbera því, hvemig allt muni eyðast og mennimir með ef þeir sjá ekki að
sér. í öðru lagi áleit hann að í hörmungunum blasti við barátta Guðs við að
afstýra öðru verra. Arvekni og bæn, traust og trú er því það sem fólk verð-
ur að temja sér.
Um daga séra Jóns var tekið að veitast að þessu trúarviðhorfi frá tals-
mönnum upplýsingarstefnunnar. Þeir litu öðru vísi á málin og vildu ekki
álíta að Guð gripi með beinum hætti inn í gang sögunnar og gang náttúrunn-
ar. I stað þess álitu þeir að náttúruöflin lytu eigin lögmálum og það yrði að
leita skýringa á þeim út frá þeim sjálfum.21 Upplýsingin skýrgreindi Guð
sem hugsjón um hið góða og fagra og leit á náttúruna og mannlífið sem bók
þar sem hægt væri að lesa sér til bæði um tilveru Guðs og um vilja hans og
ráð. Þeir álitu að það væri mönnum nóg að beita réttri hugsun og gætu þeir
þar með glætt með sér góðan vilja. Upplýsingin byggði sjónarmið sín um
tilvist Guðs á hefðbundinni hugsun í heimspeki og guðfræðí sem hafði mót-
ast og þróast innan kristinnar guðfræði frá því á dögum fornkirkjunnar og
beitti sömu röksemdarfærslum um tilvist Guðs og hefðbundin náttúruleg
guðfræði. Hún gekk hins vegar lengra en hin sígilda guðfræði í því að álíta
að menn gætu út frá náttúrunni ekki aðeins fræðst um tilvist Guðs heldur
Iíka sannfærst um vilja Guðs til hins góða. Þar töldu fyrri tíðar menn að op-
inberun þyrfti að koma til eða bók náðarinnar.
I skáldverki sínu, Sögur frá Skaftáreldi,22 lætur Jón Trausti gömul, við-
tekin viðhorf lúthersks rétttrúnaðar og ný viðhorf upplýsingarinnar í trúar-
efnum mætast í séra Jóni Steingrímssyni annars vegar og Gísla Þorsteins-
syni bónda á Geirlandi hins vegar. Gísli Þorsteinsson var fæddur 1745 og
andaðist 1825. Þeir voru nágrannar og vinir séra Jón og Gísli. í ævisögunni
talar séra Jón oft um Gísla og nefnir hann þar ætíð „Gísla minn á Geirlandi“.
Jón Trausti gerir Gísla að talsmanni upplýsingarinnar í trúarefnum og lætur
hann segja um Guð: „Ég hugsa mér guð eins og sjálfan mig - í meiri og full-
komnari mynd.“ Hann lætur Gfsla ennfremur halda því fram að það þýði
21 Um guðfræði upplýsingarinnar sjá Hagglund 1981, s. 313-331; Pelikan 1989, einkum s. 9-117.
22 Jón Trausti 1912 & 1913; endurútgáfa 1942.
32