Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.2005, Page 80

Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.2005, Page 80
frá Nasaret - sumpart á grundvelli sömu ritaðra heimilda eins og Markúsar- guðspjalls í tilviki Matteusar og Lúkasar. Hugmyndir um munnlegar geymdir þeirra, sem einasta eru þó varðveittar í fornum textum, standast ekki í ljósi hugmynda um textatengsl sem aftur byggja á hermilist mælsku- fræðinnar. Loks gengur hugmyndin um munnlegar geymdir ekki upp í Ijósi formfræðinnar sem ekki verður notuð sem grundvöllur að framsetningu munnlegra geymda því þær eru í eðli sínu of sveigjanlegar til að sérstök ein- kenni verði sett á þau í hinum elstu kristnu ritum í andstöðu við „önnur“ form eins og rannsóknir á sviði þjóðsagnaritunar sýna fram á. Hinn ritaði texti einn er varðveittur um elstu hefðir kristindómsins og reyndar allar miðaldir og fram til þessa tíma. A sama hátt eru munnlegar geymdir til að mynda margra þjóða frá Balkanskaga aðeins varðveittar í dag fyrir tilsitlli þjóðsagnaritunar á nítjándu og tuttugustu öld. Tvö dæmi forn og eitt íslenskt Tómasarguðspjall, eins og að framan getur, setur postulann Tómas í spor skrifara eða hins lærða manns í samhengi fyrstu aldarinnar eftir Kristsburð. Raunveruleikinn að baki þessum upplýsingum í guðspjallinu liggur vafa- laust í því að tryggja áreiðanleik ummælanna sem guðspjallið geymir en gefur um leið innsýn inn í fjarskalega foma hefð þar sem ekki er gert ráð fyrir eins konar millistigi (millilið) munnlegrar varðveislu þessara orða Jesú áður en þau væru skráð á bók. Varðveisla ummæla (kreiai) og dæmisagna iparabolai), tileinkuð tilteknum og áhrifaríkum einstaklingi af því tagi sem hér um ræðir, gat vissulega átt sér stað nánast milliliðalaust og á tíma hins umtalaða aðila. í öðrurn tilvikum má búast við því að einhver tími hafi lið- ið frá því ummælum var safnað í eina bók en þá einmitt oft á grundvelli eldri samantekta. Frásagnarkomum eða kreijum var iðulega safnað saman eftir ýmsa einstaklinga án nokkurs formlegs skipulags til að byrja með. Mis- munandi röðun og framsetning einstaka ummæla úr Tómasarguðspjalli í grískum handritabrotum af guðspjallinu og koptíksu þýðingunni frá Nag Hammdi sýna einmitt þessa þróun (t.d. ummæli 30 og 77). Safn ummæla hefir með öðrum orðum það hlutverk að verða grunnur að frekari útfærslu í mælskufræðilegum skilningi.42 42 Pace Clarence E. Glad þegar hann segir, „TómasarguSspjall staðfestir þó, að til hafi verið söfn eða fast- mótaðar munnlegar geymdir, eins og hugsanlega Ræðuheimildin Q, sem höfðu að mestu að geyma orð eða ummæli Jesú og lærisveina hans,“ Atökin um textann, 56. Reyndar telur Clarence að allt eins líklegt sé að guðspjallið byggi á kanónísku guðspjöllunum, ibid., 54. 78
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Ritröð Guðfræðistofnunar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ritröð Guðfræðistofnunar
https://timarit.is/publication/1152

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.