Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.2005, Page 105

Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.2005, Page 105
Ekki er vitað hvort Árni sendi tillögur sínar til Kaupmannahafnar eins og bréf Kanselíisins mælir fyrir um, en Magnús Stephensen telur að Hannes biskup Finnsson hafi fengið þær í hendur.'1' Engin bein umsögn er þó þekkt frá hendi Hannesar um tillögur Áma. Sjálfur skrifaði Hannes aðrar tillögur og fóru þær mjög í aðra átt, enda vildi hann varðveita hina íslensku hefð.20 Eftirtektarvert er að lesa athugasemdir hans. Ýmsar þeirra hafa þennan formála: Kirkjuritualið mælir fyrir um, en á Islandi er venja að ..." Af orðalaginu má ráða að Hannes er hvorki tilbúinn til að breyta út frá viðtekinni venju með skiptingu messunnar í fasta liði og breytilega (ordin- arium og proprium). Hann er ekki heldur tilbúinn til að skiljast við sérstaka hátíðamessu. Þegar tímar liðu komst þó Hannes á skoðun sem nálgaðist þá þróun sem orðin var í Danmörku. Hann gat t.d. fallist á að Kyriesálmar skyldu öldung- is aflagðir fyrst þeir væru alveg horfnir í Danmörku. En samt leið heill áratugur án þess að breyting yrði á messusöng á ís- landi. Árið 1794 var Lærdómslistafélagið stofnað. Með því komst fyrst veru- legur skriður á sálmabókarmálið. Fljótlega var tekið á dagskrá félagsins að nú þurfi að hressa uppá messusönginn. Hinn 10. ágúst 1795 skrifaði stiftamtmaðurinn Ólafur Stephensen (1731- 1812) bréf til Kanselísins í nafni Lærdómslistafélagsins þar sem hann í nafni nokkurra félaga, bað um leyfi til að laga nokkra sálma sem koma skuli í hina nýju sálmabók sem kallað hafi verið eftir, þar sem þeir uppfylli ekki kröfur samtímans um upplýsta hugsun.21 Hinn 24. október 1795 skrifar kanselíið svar við þessu bréfi22 þar sem fyrst er vísað til bréfs stiftamtmannsins, og tilkynnir að það sjái enga hindr- un í vegi fyrir því að þetta geti orðið. Mjög á líkum tíma skrifar Magnús Stephensen stiftsprófastinum í Görð- um, Magnúsi Markússyni bréf sem er dagsett 17. okt. 1795, og til er líka svar prófastsins frá 11. nóvember sama ár.23 Yfirskrift þessara bréfa í afritinu er: Athugasemdir við Grallarasönginn og 19 Lbs. 286 4to. 20 Kirkju-sidir i sálma saung Islendinga, IBR 81,4to, og Um Messu-saungs-Sálmabókina Nýju.III. 21 Þetta bréf virðist vera týnt, en í það er er vísað í svarbréfi frá 24.okt. 1795. Lovs.f.Isl.VI, 225-226. 22 Lovs.f.Isl.VI, 225-226. 23 Lbs. 286 4to. Handritasafn St.Bps.Jónssonar, N-103.3-19 og 19-30. Bjöm Magnússon nefnir í grein sinni í Samtíð og saga, 1954: „Þróun guðsþjónustuforms“, 110, bréf Magnúsar Stephensen til stiftsprófastsins Markúsar Markússononar frá 14. Okt. 1795. Líkast til á hann við þetta bréf sem hér um ræðir, frá 17.okt. 1795. 14.okt. er væntanlega prentvilla eins og föðumafn séra Markúsar. 103
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Ritröð Guðfræðistofnunar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ritröð Guðfræðistofnunar
https://timarit.is/publication/1152

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.