Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.2005, Page 118

Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.2005, Page 118
vitnar hann til bls. 171 í verki mínu. Ég minnist þess ekki að ég nefni tvö- falda útvalningu eða fyrirhugun neins staðar í verkinu. Það sem Hjalti mun eiga við eru eftirfarandi orð mín, ‘Menn gátu efast um sáluhjálp sína, óttast útskúfun en settu þeir allt traust á Krist og lifðu sig inn í líf hans og dauða, gátu þeir frelsast, leitt í ljós hvort þeir væru útvaldir’. Lúther kenndi að hin- ir sanntrúuðu ættu að geta verið vissir um hjálpræði sitt ef þeir treystu fyr- irheitum Guðs og settu traust sitt á Krist. Slíkir sanntrúaðir menn töldust eiga vísa von um himnaríkisvist. Sáluhjálp snýst þannig um náð Guðs og vissu um að verða hólpinn. I sálmi sem eignaður er séra Hallgrími Péturs- syni segir ma., ‘allri Drottins með englahirð/útvaldir búa í þeirri dýrð’ og síðan, ‘O, hve farsæl að er sú tíð/þá erum komnir þar/og eftir liðna heims- ins hríð/heitum Guðs borgarar/frá allri mæðu, eymd og þrá/erum vér loks- ins frí’.9 Ég skil 27. Passíusálm líka þannig að Hallgrímur sé viss um útvaln- ingu sína þegar hann segir, ‘í þínu nafni útvaldir/útvalinn kalla mig hjá sér’. Sannfæring um hjálpræði var jafnframt sannfæring um útvalningu. En trú- arstyrkur manna gat dvínað, þeir gátu orðið veikir í trú sinni og efast um sáluhjálp sína og útvalningu. Ráðið gegn þessu var að setja traust sitt á Krist og trúa. I texta mínum sem ég tek upp hér að ofan lýsi ég sannfæringu sann- trúaðra eins og hún kemur fram í tilvitnuðum kveðskap. Það var eðlilegt að menn legðu að jöfnu sannfæringu uin sáluhjálp sína og útvalningu en það jafngildir ekki því að allt hafi verið ákveðið fyrirfram. Hinir sanntrúuðu treystu á sáluhjálp sína og í þeirra huga jafngilti það því að þeir væru út- valdir En það jafngilti ekki fyrirhugun enda gátu hinir sömu átt stundir efa og örvæntingar. Það kemur skýrt fram í texta mínum. Um þetta efni er fjall- að í Vídalínspostillu og get ég ekki séð betur en það sé gert á líkan hátt og hér er gert en læt guðfræðingum eftir að fjalla nánar um það.10 Hjalti segir að ég virðist telja að iðrun, játning synda og neysla altar- issakramentis meðal lútherskra hafi eitt getað blíðkað Guð og þannig jafn- gilt góðverkum miðalda (bls. 128). Ekki veit ég hvernig honum dettur þetta í hug, ég segi skýrt á umræddum stað (bls. 171) að Lúther hafi kennt að menn gætu orðið hólpnir fyrir trúna eina. 9 Sálmurinn nefnist ‘Upp, upp mín sál og ferðumst fús’ og er að finna meðal annarra sálma Hallgríms í handritinu JS 208 8vo frá árinu 1730 (upplýsingar Margrétar Eggertsdóttur). Hallgrímur miðaði við að fara til himnaranns og bíða dómsdags í góðri vist og að þurfa ekki að óttast neitt, sbr. Ljóðmœli 1. útg. Margrét Eggertsdóttir (2000), 79, 83. 10 ‘Útvalningin er að sönnu altíð viss hjá Guði’. Menn gátu gert útvalninguna vissa, ‘Með soddan móti en engu öðru verðum vér vissir um útvalningu vora’. Jón Þorkelsson Vídalín: Vídalínspostilla. Útg. Gunn- ar Kristjánsson og Mörður Ámason (1995), 228, sbr. 229. 116
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Ritröð Guðfræðistofnunar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ritröð Guðfræðistofnunar
https://timarit.is/publication/1152

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.