Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.2005, Page 123

Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.2005, Page 123
ungis við fjarlægð Guðs (s. 146), heldur líka samferðafólks síns (s.66). Anna Pálína fer ekki í grafgötur með það að hún lítur á þetta sem sína bar- áttu, sem hún ein geti háð og unnið sigur í. En hún dregur ekki heldur úr mikilvægi fjölskyldu og vina. Þrátt fyrir einmanaleikann, sem stundum hvolfist yfir hana, er ljóst að eiginmaður hennar og böm hafa staðið þétt við hlið hennar á þessum erfiðu tímum og að krabbameinið hefur haft róttæk áhrif á líf þeirra allra. „Við erum í raun bæði með krabbamein“, segir Anna Pálína um sig og mann sinn og líkir þeim við Hans og Grétu sem leiðast „í gegnum myrkan skóginn vitandi það að nomin og úlfurinn liggja í leyni og bíða færis að hremma okkur“ (s.23). En einangrunin stafar einnig af við- horfum fólks til veikinda hennar. Anna Pálína kvartar undan skorti á skiln- ingi á aðstæðum og afbakaðri umhyggju, sem hún telur að krabbameins- sjúklingar þurfi að þola í meira mæli en þeir sem hafi glímt við aðra lang- vinna sjúkdóma. Hún veltir fyrir sér hvort e.t.v. þurfi að gefa út leiðbein- ingabæklinginn ,J~ívernig á að spyrja frétta af heilsufari krabbameinssjúk- lings“ (s. 140). Vandamálið má að mati Önnu Pálínu rekja til þess að fólk geri ekki greinarmun á samúð og meðaumkun. I stað opinna spuminga um líðan, sem lýsa umhyggju og einlægum áhuga á gangi mála, komi krafan um ákveðin svör, sem gjaman feli í sér dramatíska lýsingu á því „sem mið- ur hefur farið í sambandi við sjúkdóminn“ (s. 140). Þannig lýsir Anna Pálína muninum á samúð og meðaumkun og gerir augljóslega ráð fyrir að lesand- inn viti hvað hún á við, þó að ekki sé auðvelt að skýra það nánar: „Samúð er ekki það sama og meðaumkun. Það er hárfínn munur þar á. Nánast eins og blæbrigði í röddinni. En greinilegur munur engu að síður“ (s. 140). Þetta er boðskapur Önnu Pálínu til samfélagsins, þetta er lexía fyrir þau okkar sem vilja læra af reynslu hennar hvemig best fari á að tjá umhyggju fyrir ná- unganum. í sálgæslunni finnur sálgætirinn oft fyrir ráðaleysi gagnvart illskunni. Sú eða sá sem gegnir hlutverki sálgætisins þráir að finna svör, að leysa vand- ann, að binda enda á þjáninguna. Það er ekki auðvelt að horfa upp á þján- ingu og angist og eiga ekki svör, eiga ekki lausnir sem virka. Bók Önnu Pálínu ætti að vera fagnaðarefni fyrir þau sem hafa sálgæslu að lifibrauði. í henni má finna lýsingu af baráttu sem háð er upp á líf og dauða, við vágest sem svo oft bankar upp á og það iðulega þegar minnst vonum varir. Við slík- ar aðstæður er þörfin fyrir sálgæsluna sérlega brýn, þörfin fyrir nærveru andspænis ógninni, nærveru sem gefur svigrúm fyrir reiðina, óttann og ef- ann sem svo tíðum fylgja í kjölfarið. Boðskapur bókarinnar til sálgætisins felst öðru fremur í áherslunni á mikilvægi nærverunnar andspænis þjáning- unni og illskunni og í lærdómnum sem draga má af reynslunni. Andspænis 121
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Ritröð Guðfræðistofnunar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ritröð Guðfræðistofnunar
https://timarit.is/publication/1152

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.