Tímarit Máls og menningar - 01.11.2010, Page 21
Þ e g a r v i s s a n e i n e r e f t i r …
TMM 2010 · 4 21
svarað með „innihaldslausu orðagjálfri“ og að stöðugt sé vísað í „nær
trúarlegar hugmyndir um almætti ósýnilegrar handar sem muni leysa
öll vandamál“.21 Væri boðunarfrjálshyggja kannski betra orð yfir
frjálshyggju vorra tíma? Eru hugmyndir hennar afsprengi sams konar
tíðaranda og velgengnisguðfræðin (e. prosperity theology) þar sem auður
og velgengni verða að trúarlegum markmiðum?22
Í Black Mass skilgreinir John Gray „nýfrjálshyggju“ sem „hug
myndafræðilegan arftaka marxisma“.23 Gray setur fram þá kenningu
að á meðan flestar marxískar hreyfingar á nítjándu og tuttugustu
öld hafi horft til allsherjarlausna og litið á hugmyndafræðina sem
nákvæma áætlun að framtíðarríkinu, hafi íhaldsstefnan í eðli sínu
verið varfærin og pragmatísk, a.m.k. eins og hún mótaðist í Englandi.
Aðgreiningin í vinstri og hægri út frá allsherjarlausnum riðlast að viti
Grays á áttunda áratug síðustu aldar með þeim hugmyndafræðingum
nýíhaldsstefnunnar sem þá komu fram, en bakgrunnur margra þeirra
var í róttækri vinstri stefnu, m.a. Trotskýisma.24 Úr gömlu hugmynda
fræðinni tóku þessir kennismiðir „hamfarajákvæðnina“ (e. catastrophic
optimism), trúna á bjarta framtíð eftir umrót breytingaskeiðs, hvort sem
breytingarnar eru kenndar við byltingu eða ekki. Til að bæta gráu ofan
á svart eru þessar hugmyndir fléttaðar saman við staðleysutrú kristinna
harðlínumanna á hægri væng stjórnmálanna.25
Kristindómurinn hafði mikil áhrif á kenningar frjálslyndisstefnunnar
eins og hún birtist í ritum Adams Smith, t.d. í hugmyndinni um guðlega
forsjón. Eins og John Gray dregur fram í bók sinni voru t.d. veigamestu
rökin fyrir frjálsri verslun á fyrri hluta nítjándu aldar þau að tollar
væru ósamræmanlegir vilja guðs, að almættið hefði dreift auðlindum
heimsins í þeim tilgangi að sameina ólíkar þjóðir í frjálsri verslun og
bræðralagi undir guðlegu lögmáli. Í þessu ljósi hélt Richard Cobden því
fram á fimmta áratug nítjándu aldar að „frjáls verslun væri hið alþjóð
lega lögmál guðs“.26 Síðari tíma hagfræðingar reyndu með takmörkuðum
árangri að afneita trúarlegum uppruna kenninganna og leita fremur
röklegra skýringa. Gray segir þetta hafa leitt til aukinnar kreddu í
túlkun á pólitísku hagkerfi Smiths. Kenningar um frjálsan markað verði
ekki að marki trúarlegar fyrr en trúarlegum rótum þeirra hefur verið
hafnað.27 Kannski fangar eftirfarandi lýsing Giorgios Baruchello best
niðurstöður Eilífðarvélarinnar og grundvallarhugmynd Grays: „Þegar
nýfrjálshyggjan og raunveruleikinn rekast á er nýfrjálshyggjan afhjúpuð
sem það skrum sem hún er (sem þýðir ekki að málsvarar hennar séu ekki
færir um að blekkja sjálfa sig og aðra til fylgis við hana)“.28 Staðleysur eru
aldrei hættulegri en þegar menn eru blindir á þær.