Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.2014, Page 9

Tímarit Máls og menningar - 01.11.2014, Page 9
Tv ö fa l t l í f TMM 2014 · 4 9 á veg komin en raun ber vitni. Það voru mín mistök og ég hef við engan að sakast út af þessu nema sjálfan mig. Uppgjörið við hrunið Þorvaldur: Mig langar að spyrja þig um félagslegar afleiðingar hrunsins eins og þær horfðu við þér á Alþingi. Hvað finnst þér um þá skoðun, að hrunið hafi breytt Íslandi í blóðvöll, þar sem menn bítast um brakið og hver ill­ skeytt höndin er uppi á móti annarri sem aldrei fyrr, og hrunið hafi sundrað vinnustöðum og vinum. Egill Helgason blaðamaður lýsir þessu, þegar hann segir á Eyjunni: „Jafn grímulaust pólítískt blað og Morgunblaðið hefur varla verið starfandi á Íslandi frá því löngu fyrir dauða flokksblaðanna.“ Er vandinn sá, að þeir, sem Rannsóknarnefnd Alþingis nafngreinir sem aðalsökudólga hrunsins, og þeirra menn telja sig þurfa að berjast með kjafti og klóm gegn niðurstöðum nefndarinnar? Þú manst, að af þeim sjö stjórn­ mála­ og embættismönnum, sem nefndin taldi hafa vanrækt skyldur sínar í skilningi laganna, voru fjórir hátt settir sjálfstæðismenn. Og þú manst, hvað Páll Hreinsson hæstaréttardómari, formaður nefndarinnar, sagði á blaða­ mannafundinum, þar sem skýrsla nefndarinnar var kynnt. Hann sagði: „Enginn gekkst við ábyrgð.“ Hvernig horfir þetta við þér? Hvernig komu persónuleg samskipti í þinginu þér fyrir sjónir við þessar aðstæður eftir hrun? Þráinn: Allar rannsóknarnefndir hverra skýrslur ég hef lesið bæði varð­ andi hrunið og aðra alvarlega hluti eiga það sameiginlegt að skila af sér of löngum textum og of litlum niðurstöðum. Niðurstöðufælnin er sláandi, og það er sláandi að lopinn er teygður von úr viti í von um að niður­ stöðuleysið verði ekki jafnáberandi. Svo að sanngirni sé gætt þá er yfirleitt að finna í rannsóknarskýrslum vísbendingar eða ábendingar sem eru yfirleitt umvafðar þykkum lopa. Það er rétt sem Páll Hreinsson sagði og mætti umorða sem svo: Allir segjast vera saklausir – líka þeir sem eru sekir. Ég held að enginn vænti þess að rannsóknarskýrslur innihaldi miklar og góðar játningar, enda skilst mér að hver einasti smákrimmi hafi séð nógu mikið af glæpamyndum í æsku til að komast á það menntunarstig í sínu fagi að vita að hyggilegast er að neita öllum ásökunum fram í rauðan dauðann. Ég bjóst ekki við því að rannsóknarskýrsla Alþingis kæmi til með að upp­ lýsa alla þá atburðarás eða greina alla þá áhrifavalda og orsakir sem ollu hér efnahagshruni og rústaði orðspori Íslendinga á alþjóðavettvangi. Hins vegar hafði ég vonast til að málæðið yrði minna og niðurstöðurnar eða niður­ stöðuleysið skýrara; ekki endilega með nafngreindum sökudólgum heldur væri með afgerandi rökum bent á kerfi, löggjöf, fyrirtæki og stofnanir þar sem virðing og umhyggja fyrir almannahagsmunum var lögð til hliðar og spilling og áhættuhegðun stunduð.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.