Tímarit Máls og menningar - 01.11.2014, Blaðsíða 30
Þ o r va l d u r G y l fa s o n
30 TMM 2014 · 4
til að hægt væri að grípa inn í ónytjungsferlið. Hann hafði þann sið að eiga
jafnan sælgætisbirgðir og var ekki spar á sætindin og ég sá ekki betur en
hann trakteraði alla jafnt, hægri menn og vinstri menn. Bein samskipti
mín við útgerðarmenn hafa að öðru leyti verið mjög lítil, nánast engin.
Mér sjálfum finnst ég hafa álíka mikið vit á útgerðarmálum og kvóta eins
og útgerðarmaðurinn notalegi hafði á listum og menningu. Þess vegna
hef ég ekki haldið fram öðrum skoðunum á því sviði en að fiskimiðin úti
fyrir ströndum landsins séu afdráttarlaust auðlind í eigu þjóðarinnar nú og
ævinlega, og þessa auðlind beri að nýta með sjálfbærum og skynsamlegum
hætti og sanngjarnar greiðslur skuli koma fyrir afnotarétt af auðlindinni.
Nú er lagatæknin orðin svo yfirgengileg að því sjónarmiði er haldið fram
að „þjóð“ geti ekki átt nokkurn skapaðan hlut og það fyrirbæri geti eigin
lega ekki verið til í „lagatæknilegum skilningi“. Svona langt er nú komin sú
póstmóderníska „afmenntun“ sem haldið er að fólki í stað menntunar í til
teknum háskóladeildum komin við að gera fjöldamargt fólk …
Þorvaldur: Og lærða menn og prófessora.
Þráinn: … að óviðræðuhæfum fábjánum. Því að öll menntun heimsins
mun gera þig að fábjána ef þess er krafist að til að útskrifast sem fullnuma í
einhverri grein verði nemendur að leggja heilbrigða skynsemi til hliðar fyrir
fullt og allt.
Þorvaldur: Hvers vegna brást ríkisstjórn Samfylkingarinnar og Vg í
fisk veiði stjórnarmálinu? Það mál var á forræði Vg allt kjörtímabilið. Ríkis
stjórnin hélt áfram að úthluta kvóta gegn málamyndagjaldi, þótt 83%
kjósenda lýstu stuðningi við auðlindaákvæðið í frumvarpi stjórnlagaráðs að
nýrri stjórnarskrá, sem kveður á um fullt gjald fyrir nýtingarréttinn. Ekki
bara það: ríkisstjórnin gaf útvegsmönnum makrílkvótann, þegar makríllinn
renndi sér inn í íslenzka fiskveiðilögsögu, í stað þess að bjóða kvótann upp
á markaði. Sérð þú hér sama skeytingarleysi Alþingis um vilja fólksins í
landinu eins og í stjórnarskrármálinu og Evrópumálinu?
Þráinn: Við skyldum ekki vanmeta styrk LÍÚ og þeirra sem hagsmuna
eiga að gæta í sambandi við að fikta ekki í því góða kvótakerfi sem hefur gert
margan góðan dreng að stóreignamanni. Við skulum ekki heldur vanmeta
þann þingstyrk sem stuðningsmenn LÍÚ og óbreytts kerfis höfðu á Alþingi á
þessu kjörtímabili. Og allrasíst skulum við vanmeta þá óbilgjörnu og ósvífnu
stjórnarandstöðu sem stjórninni tókst ekki að hafa undir nema í örfáum
málum og að öðru leyti eingöngu að nafninu til.
Um það leyti sem ég gekk til liðs við Vinstrigræna og tók til starfa
í þingflokki þeirra lýsti ég því afdráttarlaust yfir á þingflokksfundi að
sjávarútvegsráðherra flokksins Jón Bjarnason hefði ekki minn stuðning til
að gegna því ráðherraembætti vegna þess að ég hefði ekki trú á að hann
hefði burði til þess að koma fram með nýtt fiskveiðistjórnarfrumvarp nógu
tímanlega til að hægt væri að fá samstarfsflokkinn, Samfylkingu, til að lýsa