Tímarit Máls og menningar - 01.11.2014, Page 83
„ Æ s i l e g a s t a o f u r h e t j a a l l r a t í m a“
TMM 2014 · 4 83
Óðins. Öll eru goðin eins og Banda
ríkjamenn gerðu sér víkinga í hugar
lund með hyrnda hjálma og gul skegg.
Einn nasistana segir sína menn starfa
á vegum Adolfs Hitler, hins eiginlega
leiðtoga goðanna, og hnýtir við að nú
þurfi að koma Carter og drengjunum
hans fyrir kattarnef. „Foringi okkar
hefur skipað svo fyrir! Við munum
ná heimsyfirráðum“. En Óðinn er
ekki ginnkeyptur fyrir þeim boð
skap. „Hvaða uppskafningur er þessi
Hitler?“ spyr hann. „Ég hef aldrei valið
hann sem leiðtoga!“ Carter útskýrir
að þýski kanslarinn hafi útnefnt
sjálfan sig stjórnanda heimsins „og nú
erum við að berjast gegn herjum hans
til að verða frjáls! Við sættum okkur
ekki við ánauð!“ Óðinn ákveður að
gera út um deiluna með einvígi milli
foringja fylkinganna tveggja og til allrar hamingju fer Carter þar með sigur
af hólmi. Þeir drengirnir sleppa heilir á húfi úr Valhöll á meðan Thor notar
hamar sinn til að feykja nasistunum út í ystu myrkur. Í lok sögunnar er gefið
í skyn að senan með þátttöku goðanna hafi verið draumur eins drengjanna
en það breytir ekki boðskapnum sem Óðinn orðar svo: „Valhöll er á norskum
himni … ekki þýskum!“11
Þriðja sagan um Thor sem tengist nafni Kirbys nefnist „The Magic
Hammer“ en hún birtist í tímaritinu Tales of the Unexpected #16 árið 1957.
Um er að ræða einfalda dæmisögu um oflæti og ágirnd. Í upphafi segir
af indjána einum sem fylgir hvítum gullgrafara, Gerald Bard, um villta
vestrið og rekst þá á hamar úti á víðavangi. Þeir uppgötva að ef hamrinum
er fleygt framkallar hann þrumur og eldingar. Í kjölfarið semur Bard við
yfirvöld á þurrkasvæðum um að útvega þeim rigningu eftir pöntun. Hann
hagnast vel á að selja þessa þjónustu en þegar hann kemst fyrir tilviljun að
því að í hamrinum býr einnig máttur til að kljúfa trjáboli ákveður hann að
skipta um starfsgrein: „Með þessum töfrahamri get ég brotið mér leið inn í
bankahvelfingar,“ hugsar Bard með sér, líkt og Fenton í elstu sögunni. Áður
en honum gefst tóm til að gera alvöru úr þeim áformum birtist skeggjaður
víkingur við hlið hans, kynnir sig sem Thor og kveðst vilja fá vopnið sitt
aftur:
Ég kem frá landi sem þú þekkir ekki – og þar stjórna ég þrumum og eldingum
… Fyrir mörgum öldum, þegar ég sat veislu í gildaskála, stal litli hrekkjótti Loki