Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.2014, Page 119

Tímarit Máls og menningar - 01.11.2014, Page 119
R ó s i b r ó ð i r TMM 2014 · 4 119 Ég var búinn að hita vel upp og stóð inni í miðri þvögunni við rásmarkið. Ég fann að ég var í banastuði og til alls líklegur. Og þá kom ég auga á þá. Þeir stóðu einhverja 15–20 metra frá mér. Biggi og Víðir héldu á Rósa á milli sín. Valur var að festa keppnisnúmerið á hann. Svo horfðu þeir allir á mig, þar sem ég stóð í miðjum hópnum. Ég leit undan og horfði af öllu afli beint í hnakkann á hlauparanum fyrir framan mig. Það var loksins komið að því, sagði ég við sjálfan mig, þessu hafði ég beðið eftir og kannski yrði þetta eina tækifærið sem ég fengi. Ég var staðráðinn í að láta ekki bugast. Það sem gerðist næst er svolítið erfitt að útskýra, kæra vinkona. Rásskotið reið af og allur hópurinn komst á hreyfingu. Ég mjakaðist af stað, en um leið mjakaðist ég út á hlið og þó að það ætti að drepa mig get ég ekki áttað mig á því hvort það var óvart eða viljandi. Það næsta sem ég vissi var að ég var kominn með Rósa bróður á bakið. Víðir, Valur og Biggi hlupu meðfram brautinni nokkra tugi metra og hvöttu Rósa bróður sinn fullum hálsi. Þetta var allt í lagi til að byrja með. Ég var svo sem vanur að bera þunga hluti á bakinu, hvort sem það voru Borgundarhólmsklukkur, leðursófar eða Rósi bróðir. Fyrstu fjórir–fimm kílómetrarnir voru þess vegna ekkert sérlega erfiðir, en eftir það fór róðurinn að þyngjast verulega. Mér þótti það líka erfitt hvað Rósi var rogginn. Í hvert sinn sem við hlupum framúr einhverj­ um lét hann einhverjar háðsglósur falla, eins og „Eru kókosbollurnar farnar að síga í?“ eða „Nei, amma mín, hvað ert þú að gera hér?“ Ég gat ekkert gert annað en brosað afsakandi til þeirra sem fengu skotin og svo hljóp ég áfram. Rigningin bætti ekki úr skák. Það hafði verið svolítill úði í upphafi hlaupsins, svo brautin var hál á stöku stað og þar sem ekki var bundið slitlag varð maður virkilega að gæta sín hvar maður steig niður. Þegar við fórum framhjá tíu kílómetra markinu var komið úrhelli. Ég var hættur að sjá skýrt því veðrið stóð beint framan í mig og auk þess var farið að renna stjórnlaust úr nefinu á mér. En Rósi reyndist vera með einnota ponsjó í vasanum og nú dró hann það upp og klæddi sig í það í mestu makindum. Þegar ég sá að tuttugu kílómetrar voru að baki tók ég ákvörðun. Ég myndi ekki hlaupa maraþon í þetta skipti. Það yrði bara að bíða betri tíma. Það var auðvitað miklu stærri hópur sem aðeins hafði skráð sig í hálft maraþon og það var heldur ekkert til að skammast sín fyrir. Síðasta kílómetrann ákvað ég því að gefa vel í og láta síðan gott heita. Við nálguðumst markið og ég sá fjóra­fimm hlaupara á undan mér hlaupa þar í gegn og fagna þessu afreki sínu. En þegar Rósi bróðir sá að þarna lét stór hópur staðar numið, þá færðist hann allur í aukana og tók að hrópa af öllum kröftum. „Hvers konar kellingar eruð þið eiginlega?“ orgaði hann á hina hlauparana. „Á bara að gefast upp hér, eða hvað? Ha? Hvar er pungurinn á ykkur, strákar? Ha? Týndist hann í þvotti, eða hvað?“ Ég veit ekki, kæra vinkona, hvað gerðist í höfðinu á mér. Eflaust hef ég eitthvað hugsað, en því er gjörsamlega stolið úr mér. Það eina sem ég veit er að ég hljóp í gegnum markið og áfram. Og áfram. Og áfram hljóp ég.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.