Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.2018, Síða 49

Tímarit Máls og menningar - 01.09.2018, Síða 49
A ð l e i k a S h a k e s p e a r e TMM 2018 · 3 49 Stakhenda eða prósi Stundum notar Shakespeare stakhendu og stundum prósa. Rúmlega tuttugu og átta prósent textans í leikritum hans er prósi. Það er allnokkuð. En hvar skiptir á milli prósans og bundna málsins og hvers vegna? John Barton segir: „Það er ekki óalgengt að það sé jafnmikil ljóðræna og stundum meiri í prósanum en í sumu af bundna textanum. Og sums staðar er hrynjandin í prósanum ákveðnari en víða í bundna málinu hjá Shakespeare. Það er mikilvægt fyrir leikara að gera sér grein fyrir því. Manni gæti dottið í hug að Shakespeare noti stakhenduna þegar rómantík er á ferðinni og skáld- legur texti, en prósa fyrir einfalt líf og það hversdagslega. Oft er það þannig. En ekki alltaf þó. Engar reglur eru þar um, því Shakespeare er margháttaður og ekki alltaf samkvæmur sjálfum sér!“17 Peter Hall segir að prósinn eigi sér sitt form og sé hægari en stakhendan. Hann segir það vera verkefni leikarans að afhjúpa meininguna varlega og krydda þversagnirnar og útúrsnúningana og andstæðurnar. Í prósanum höfum við ekki eins margt að styðjast við og í bundna text- anum. En við getum byrjað á því að kanna hvar áherslurnar liggja og finna hljómfallið út frá því. Texti í óbundnu máli getur falið í sér sterkar áherslur, leik með andstæð orð og orðamyndir og öfluga heildarhrynjandi og allt gefur þetta honum yfirbragð mikils krafts og glæsileika. Spurningunni hvers vegna Shakespeare skiptir á milli prósa og bundins máls og hvar það gerist í textanum er svarað í rannsóknarvinnu æfinga- ferlisins. Leikarar og leikstjórar geta komist að ýmsu um persónurnar og innbyrðis sambönd í þeirri könnun. Af því að engar ákveðnar reglur gilda verður að skoða hvert tilfelli fyrir sig. Við getum til að mynda sagt að í Kaupmanni í Feneyjum sé stundum skipt á milli brags og prósa eftir því hvort um rómantík eða raunsæi er að ræða. Og í Troilus og Kressidu er stundum skipt yfir í prósa þegar grimmur veruleikinn brýst inn í kringumstæðurnar. En þetta er ekki einhlít viðmiðun. Í öllum til- fellum verðum við að spyrja: hvers vegna? Leikandi létt á tungu Þegar við veltum fyrir okkur hvernig best sé að leika Shakespeare liggur beinast við að spyrja hann sjálfan. Og hann hefur að sjálfsögðu svar á reiðum höndum. Hann lætur Hamlet segja leikurunum til áður en þeir flytja leik- þáttinn um morðið á konunginum: „Farðu nú með ræðuna eins og ég flutti hana fyrir þig, leikandi létt á tungu; en ef þú þenur þig á henni, einsog mörgum leikurum er títt, þá væri jafn-gott að kallarinn segði fram þessar hendingar mínar. Og ekki máttu saga loftið um of með hendinni, TMM_3_2018.indd 49 23.8.2018 14:19
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.