Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.2018, Síða 56

Tímarit Máls og menningar - 01.09.2018, Síða 56
K r i s t í n Ó m a r s d ó t t i r 56 TMM 2018 · 3 Kristín Ómarsdóttir Ég er höfðinglega venjuleg Viðtal við Anne Carson skáld Fyrir nokkrum árum hlustaði ég á kaffibar í Kaupmannahöfn á sænskt skáld lesa upp úr þýðingu bókar sem heitir Red Doc> (2013); ég skildi næstum allt þó ég skilji ekki sænsku. Í október sem leið fór ég í sund. Þegar ég sneri mér við hjá bakkanum í þriðja sinn stakk manneskja sér ofan í brautina og sagði hæ. Út synti ég og hugsaði: var þetta íslenskt hæ eða útlenskt? Næst þegar við mættumst við bakkann spurði ég: ertu skáld? Sundkonan kinkaði kolli. Má Tímaritið taka við þig viðtal? Viku síðar sátum við við eldhúsborð í kjallara Gröndalshúss á nýrri lóð þess í Grjótaþorpinu. Skömmu eftir að viðtalið hófst kom maður hennar Robert Currie úr sím- anum og settist hjá okkur, úr varð án skipulags að við Currie tókum viðtalið saman; spurningar hans og athugasemdir eru merktar honum. Ætti maður að skrifa ástarbréf til guðs, hugsaði ég og las samnefnda ritgerð Anne Carson um þær Saffó, Marguerite Porete og Simone Weil í bókinni Decreation (2005), sem samanstendur af ljóðum, ritgerðum og óperu. Þannig bindur Anne oft bækur sínar. The Beauty of the Husband (2001) er skálduð ritgerð í tuttugu og níu tangóum og fleyguð brotum úr ljóðum og skrifum eftir John Keats sem hún tileinkar verkið. Autobiography of Red (1998) er skáldsaga í bundnu máli en fyrstnefnda bókin [Red Doc>] er framhald hennar, sögu Rauðs og félaga. Í þessum tveimur verkum vinnur hún með forngríska goðsögu og færir til nútímans. Anne nam klassísk fræði og þýðir úr forngrísku og kennir. Þessi bak- grunnur litar og styrkir frábært ímyndunarafl hennar og grundvallar kannski frelsi og öryggi verkanna. Að lesa bækur eftir Anne er einsog að taka örvandi ímyndunaraflslyf um leið og ég sit undir tré og sýp te úr visku- brunni. Nú í sumar kom út hjá Tunglforlaginu frumsamin bók og tvítyngd eftir Anne og myndskreytt af Currie, Vör: Naumt skömmtuð sonnettusyrpa, í þýðingu Ingibjargar Sigurjónsdóttur. hjónin komu til landsins um Jóns- messuna af því tilefni, lásu upp og fluttu gjörninga í Hnitbjörgum, Listasafni Einars Jónssonar, og Mengi við góðan orðstír. *** TMM_3_2018.indd 56 23.8.2018 14:19
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.