Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.2018, Side 86

Tímarit Máls og menningar - 01.09.2018, Side 86
B e r g l j ó t S o f f í a K r i s t j á n s d ó t t i r 86 TMM 2018 · 3 uppi með sögulega skáldsögu eftir höfund sem er ekki bara staðkunnugur á svæðinu sem hann segir frá, heldur hefur sennilega talað við annaðhvert gamalmenni þar og að auki sankað að sér ýmsum skjölum úr héraði. En málið á sögunni gæti líka verið skemmtilegt viðfangsefni. Það er ansi trú- verðugt sem 18. aldar mál en virðist þó einnig sótt til 19. aldar og íslenskra fornbókmennta. Ljúgverðugleikinn er sem sé umtalsverður – svo að vísað sé til Þórarins Eldjárn.38 Vinsældir sögulegs skáldskapar á þessari öld valda svo því að nú gefst tilefni til að lesa saman gagnólík verk. Fróðlegt gæti til að mynda verið að taka saman ýmsar sögur og sagnabrot og skoða aðferðirnar sem ólíkir höf- undar nota til að lýsa biskupssetrinu Skálholti, því sem gerist þar innan dyra, umhverfi þess og pólitískum og félagslegum áhrifum – og hvert markmiðið kann að vera með sögulega skáldskapnum. Þá mætti jafnt lesa saman sögur sem settar eru niður á sömu öld, eins og Haustgotasögu (2005) Semings (Guð- mundar Óla Ólafssonar) og Í skugga drottins, eða stefna saman verkum um ýmsar aldir og bæta t.d. við Byltingarbörnum (2000) Björns Th. Björnssonar, brotum úr Leiðinni til Rómar (2002) Péturs Gunnarssonar og – kannski til að gefa flokkun í bókmenntagreinar langt nef – öðrum úr Snorra á Húsafelli! V Frásögnin má kallast eitt af grunnformum mannlegrar hugsunar. Börn eru ekki fyrr farin að tala en þau segja: „Veistu hvað ég sá?¨“, „Veistu hvað kom fyrir?“ og skipa upplifunum sínum í sögu. Smám saman safnast þær saman, og sem einstaklingarnir eldast sníða þeir þær sífellt til í söguna um eigið líf uns upp rís „eins konar söguleg skáldsaga“, svo að vísað sé til Sigur- jóns Björnssonar.39 Sögulegur skáldskapur er því líklega snarari þáttur í lífi hverrar manneskju en margan kann að gruna. En vöxtur hans hérlendis, eins og hann birtist í útgefnum bókum á síðustu áratugum, kallar á að honum sé sinnt rækilega – með hliðsjón af nýlegum skrifum jafnt í sagnfræði sem bók- menntafræði. Og það vona ég að vangaveltur mínar vitni um.40 Tilvísanir 1 Sjá t.d. „Váfugl eftir Hall Hallsson“ [auglýsing frá bókaforlaginu Vexti], Dagblaðið Vísir, 17. október 2008, bls. 17. Tekið skal fram að tilvitnuð orð standa líka á kápu Váfugls. 2 Sjá Richard Lee, „Defining the Genre“, Historical Novels Society, https://historicalnovelsociety. org/guides/defining-the-genre/. Sótt 6. maí 2018. 3 jse, „Frá degi til dags“, Fréttablaðið, 29.nóvember, 2008, bls. 18. 4 Sjá Elysium space, elysiumspace.com Sótt 27. ágúst 2018. 5 Tekið skal fram að á heimasíðu Historical Novels Society nefnir Sarah Johnson að tímarit þeirra, Historical Novels Review noti ekki bara fimmtíu ára regluna sem fyrr var nefnd heldur miði við að höfundurinn styðjist fremur við „rannsóknir“ en „persónulega reynslu“, sjá Sarah Johnson, „Defining the Genre: What are the rules for historical fiction?“, https://historicalno- velsociety.org/guides/defining-the-genre/defining-the-genre-what-are-the-rules-for-histori- cal-fiction/. Sótt 15. apríl 2018. TMM_3_2018.indd 86 23.8.2018 14:19
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.