Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.2018, Page 90

Tímarit Máls og menningar - 01.09.2018, Page 90
H a l l d ó r G u ð m u n d s s o n 90 TMM 2018 · 3 eldri eða segja ungum krökkum frá ævintýrum jafnaldra þeirra í Ólátagarði; hún skrifar án allrar tilgerðar og stæla og allt virðist einfalt og ljóst en samt búa einhverjir óútskýrðir töfrar í sagnamennskunni, einsog allir þeir hafa fundið sem hafa lesið bækur hennar upphátt fyrir börn. Af öllum mistökum sænsku akademíunnar sem nú eru mjög til umræðu eru þau sýnu stærst frá sjónarhorni bókmenntanna að hafa aldrei veitt henni Nóbelsverðlaunin. Nú eru meira en þrjátíu ár liðin frá þessum stutta samfundi okkar, og ekki ætla ég að þykjast hafa þekkt hana og gæti ekki einu sinni lýst útliti hennar þennan dag án þess að rugla því saman við allar þær myndir sem ég hef séð af henni síðan, en hún virkaði á mig einsog texti hennar, greip mig frá fyrstu málsgrein, skörp og írónísk hvað sem allri vinsemd leið og þegar við bættist sterk útgeislun hennar sem persónu er ekki nema von manni hafi liðið einsog litlum dreng hjá stórum sagnameistara. Að loknu kaffistofuspjalli fórum við yfir í skrifstofu mína og hún leit yfir hillur af útgáfubókum Máls og menningar. Einhvern veginn fannst mér ég þurfa að sýna henni nýlegar sænskar skáldsögur sem þar höfðu komið út og báru vitni um gott hjartalag og samfélagslega hugsun og gott ef ekki sálfræðimenntun höfunda sinna og eru nú að mestu gleymdar, ég nefni PC Jersild sem dæmi um tískuhöfund þessara ára. Astrid Lindgren sagði ekkert á meðan á þessari sýningu minni stóð, en hélt áfram að skima um hillur og skápa, uns hún greip allt í einu litla og yfirlætislausa bók úr skápnum, Viktoríu eftir Knut Hamsun í þýðingu Jóns Sigurðssonar frá Kaldaðarnesi, sem MM hafði þá nýlega endurútgefið, kannski fallegustu ástarsögu Norður- landa. Hún handlék bókina og svo horfði hún á mig, með tvírætt bros í augum (því manneskja einsog Astrid Lindgren glottir ekki) og sagði: „Mikið er gott að sjá að þið skulið líka gefa út bókmenntir.“ Ég held að útgáfustefna Máls og menningar hafi ekki fengið harðari áfellisdóm í minni tíð. En saga Hamsuns, sem kom fyrst út þegar Astrid Lindgren var fimm ára, hreyfði við henni og hún fór að tala um þær bækur sem hún las ung og áttu sinn þátt í að gera hana að þeim höfundi sem hún varð. Í Jólaóratóríu Görans Tunström er ógleymanlegur kafli þar sem aðalpersónan Sidner, átján ára ungur, heimsækir skáldkonuna Selmu Lagerlöf aldraða. Hún þarf á hjálp hans að halda við að skera uppúr bókum sem henni hafa verið sendar svo höfundarnir haldi að hún hafi reynt að lesa þær. Bækurnar eru teknar úr hillu og Selma lætur orð falla um höfundana. Nú leið mér einsog ég væri staddur í þessari sögu sem jafnframt var ein fyrsta erlenda skáldsagan sem kom út í minni tíð hjá MM. Því aðallega var Selma að segja Sidner frá því hvernig það er að skrifa bók: „Það er eins og að neyða sjálfan sig yfir eyðimörk: langar vegalengdir án minnsta vatnsdropa, hvergi tré til að hvílast undir. En svo kemur að vin: þar flóir málið, þar opnast sérhvert lauf, allt vill verða að skáld- skap“ (þýðing Þórarins Eldjárns). Frá skrifstofunni héldum við niður á efstu hæð bókabúðarinnar með erlendu bókunum, og Astrid hélt áfram að grípa bækur sem henni þótti eitt- TMM_3_2018.indd 90 23.8.2018 14:19
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.