Tímarit Máls og menningar - 01.09.2018, Page 99
S a m e f l í n g í s l e n s k r a r l i s t a r í 9 0 á r
TMM 2018 · 3 99
Kolbrún Halldórsdóttir
Sameflíng íslenskrar listar í 90 ár
Bandalag íslenskra listamanna
stofnað 6. september 1928
Þann 6. september sl. voru 90 ár liðin frá stofnun Bandalags íslenskra lista-
manna. Yfirskrift þessarar greinar er tilvísun í ræðu sem Halldór Laxness
flutti vorið 1950 við setningu þriðja listamannaþingsins sem Bandalag
íslenskra listamanna gekkst fyrir. Það var haldið í Þjóðleikhúsinu þegar
einungis voru liðnir örfáir dagar frá vígslu hússins og stóð yfir í heila viku.
Fáir hafa orðað betur hlutverk listanna í samfélaginu en Halldór og verða
tilvitnanir í þessa sömu ræðu því notaðar sem millifyrirsagnir í því sem á
eftir kemur.
… slík sameflíng íslenskrar listar í einu þíngi takmörkuðu af stað og tíma var ekki vígi
reist til bráðabirgða til að verjast stundlegum áróðri gegn list og listamönnum, heldur
liðskönnun vor sjálfra listamanna, tilraun til að bera fram áþreifanleg rök nokkur, og
eftilvill ekki hin veigaminstu, sem réttlætt gætu sjálfstæði Íslands …
Það er margt í sögu Bandalags íslenskra listamanna, BÍL, sem áhugavert og
fræðandi væri að rýna í þegar því er fagnað að 90 ár eru liðin frá stofnun þess.
Grein þessari er þó ekki ætlað það hlutverk heldur er meiningin að draga upp
eins konar augnabliksmynd af starfi Bandalagsins og horfa til framtíðar með
því að beina sjónum að málefnunum sem þessi heildarsamtök listamanna
hafa sett á oddinn undanfarin ár og kanna þann árangur sem náðst hefur í
áralangri baráttu fyrir bættu starfsumhverfi listafólks. Af mörgu er að taka
enda koma listamenn víða við og málefni listanna varða ólíka málaflokka
samfélags og stjórnsýslu. En þó sýn listafólks á þróun mála í listageiranum
sé skýr og þó ýmis framfaraskref hafi verið stigin fyrir tilstilli Bandalagsins
þá er ævinlega fjöldi mála í deiglu hjá aðildarfélögunum eins og vera ber
í samfélagi sem byggir á skapandi samtali stjórnvalda og atvinnulífs. Efni
greinarinnar tekur aðallega mið af áherslum í starfi BÍL þann tíma sem
greinarhöfundur gegndi starfi forseta, árabilið 2010 til 2018.
Ég veit ég þarf ekki að fjölyrða um það í hópi listamanna og listelskra, hvað íslenska
þjóðin hefur afrekað í list á liðnum öldum, þó ytri ástæður hafi valdið því að þau
afrek voru unnin mestmegnis í einni listgrein, né hverja lífsorku þessi þjóð hefur sótt
í listir frá upphafi.
TMM_3_2018.indd 99 23.8.2018 14:19