Tímarit Máls og menningar - 01.09.2018, Blaðsíða 109
H u g v e k j u r
TMM 2018 · 3 109
Það voru matur og vín. Jónas hafði
oft orðið þess var á hinum ýmsu ferðum
sínum á fundi og ráðstefnur með
erlendum starfsbræðrum að mikið var
talað um mat og vín og stundum af
allnokkurri þekkingu, þegar menn sátu
saman að kvöldi að lokinni dagskrá.
Jónas byrjaði á vínunum. Hófst nú
mikil rannsóknarvinna á öllu er að
vínum sneri, þar með talinni ræktun
vínberja og framleiðslu vína í öllum
helstu vínræktarhéruðum heimsins. Jónas
heimsótti flesta þessa staði og kynnti sér
framleiðsluna í öllum atriðum. Sneri sér
síðan að ríkisrekinni einkasölu vína hér
á landi. Skoðaði af mikilli nákvæmni
víninnkaup og sölu ÁTVR á vínum og
þótti ekki mikið til koma. Ekki væri unnið
þar af nægilegri nákvæmni og þekkingu á
verkefninu.
Hófst þá vínsmökkunin. Fór sú
athöfn fram á heimili þeirra Kristínar að
Fornuströnd á laugardögum kl 16, í einn
vetur. Rannsakaðar eru fimm tegundir
af rauðvíni og fimm af hvítvíni í hvert
skipti. Vínin sett á borð og hólkur yfir
hverja flösku svo smakkarar sæju ekki
tegundarheiti. Þá fékk hver þátttakandi
sérstök eyðublöð sem Jónas hafði
útbúið og látið prenta, þar sem menn
skyldu gefa hinum ýmsu eiginleikum
vínanna einkunnir. Þetta var mikil
nákvæmnisvinna og fylgdu auðvitað
með litlar fötur, sem þátttakendur
skyldu spýta í, svo ekki þyrfti að kyngja
þessum ósköpum með fyrirsjáanlegum
afleiðingum. Við hjónin entumst í nokkur
skipti við þessa iðju en þá komu aðrir
vinir í okkar stað.
Árangur þessa framtaks varð auðvitað
sá að innkaupastefna ÁTVR breyttist til
hins betra, enda birti ritstjórinn árangur
smakksins jafnóðum í blaði sínu. Hefur
ÁTVR síðan haft á að skipa færustu
sérfræðingum í vínum, bæði við innkaup
og afgreiðslu. Og fullyrða má að þetta
framtak Jónasar hafði raunveruleg áhrif á
möguleika kaupenda til að fá boðleg vín á
boðlegu verði í vínbúðunum.
Næst sneri Jónas sér að matar- og
veitingahúsamenningunni. Tók að kynna
sér allt er laut að matseld og framreiðslu
á mat í veitingahúsum borgarinnar. Gekk
að þessu verki með sama hætti, þ.e. mikilli
elju og ástríðu. Birti síðan niðurstöður
sínar jafnóðum í sérstökum þáttum um
veitingahús í blaði sínu. Hef ég fyrir því
traustar heimildir að mikill titringur hafi
orðið í eldhúsum veitingahúsanna þegar
fréttist af Jónasi og frú í salnum. Eitt
nýopnað veitingahús í miðborginni fékk
slíka útreið hjá ritstjóranum að eigendur
kusu að loka staðnum og byrja upp á nýtt
síðar, undir öðru nafni.
Nú sneri Jónas sér að ferðabókum í
samstarfi við Þorstein heitinn Thorarensen
bókaútgefanda og fyrrum samstarfsmann
á Vísi. Tók Jónas til við að kynna sér
öll bestu hótel og veitingastaði í helstu
stórborgum heimsins. Svo og alla þekkta
staði viðkomandi borgar sem vert væri
fyrir ferðamenn að skoða. Þetta var
viðamikið verk og urðu af margar bækur
í handhægu broti og vel myndskreyttar.
Allar myndir í bókunum tók Kristín
Halldórsdóttir, eiginkona Jónasar.
Þakklátir íslenskir ferðamenn tóku
þessum bókum mjög vel og hafa þær verið
endurprentaðar og endurútgefnar um
nokkurra ára skeið.
Þegar þarna var komið sögu höfðu
þau Jónas og Kristín snúið sér að
hestamennsku, að áeggjan okkar Auðar
Eydal, konu minnar. Þegar Jónas hafði
keypt nokkra reiðhesta og hesthús í
Víðidal tók hann til við að kynna sér ættir
og uppruna hrossa sinna. Ekki lét hann
þar við sitja heldur hóf að kynna sér og
rannsaka ættir og uppruna allra helstu
gæðinga landsins, bæði ræktunarmera og
stóðhesta. Hófst þar með nýr kafli í starfi
vísindamannsins Jónasar Kristjánssonar.
Og enn voru verk hans gefin út á prenti.
Um a.m.k. tíu ára skeið var gefinn út
eftir hann fjöldi mikilla bóka um ættir og
uppruna íslenskra hrossa með nákvæmum
ættartölum og fjölda fallegra mynda.
Hefði slík rannsóknarvinna, ein og sér,
örugglega þótt boðlegt ævistarf venjulegra
manna. Sem Jónas var auðvitað ekki.
TMM_3_2018.indd 109 23.8.2018 14:19