Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.2018, Page 110

Tímarit Máls og menningar - 01.09.2018, Page 110
H u g v e k j u r 110 TMM 2018 · 3 Þau hjón tóku nú að stunda ferðalög á hestum um hálendi Íslands. Fannst Jónasi þá sárlega vanta heildstæðar upplýsingar um reiðleiðir á Íslandi, bæði að fornu og nýju. Og nú hófst vinna við að rannsaka öll finnanleg gögn um reiðleiðir og koma í aðgengilegt form. Afrakstur þeirrar vinnu varð mikil bók, mörghundruð blaðsíður í stóru broti, með nákvæmum kortum og öllum fáanlegum upplýsingum um 1001 reiðleið á Íslandi, allt frá landnámi til okkar daga. Mun sú bók lengi í hávegum höfð af íslenskum hestamönnum. Ég hef kosið að fjalla hér um aðra hlið á Jónasi Kristjánssyni ritstjóra en þá sem þekktari er, þ.e. blaðamennskuna. Munu örugglega einhverjir starfsbræður hans eða systur gera þeim málum skil. Við Auður viljum að lokum þakka Jónasi Kristjánssyni fyrir langa samfylgd, allt frá árinu 1959, eins og áður sagði. Einnig konu hans Kristínu, sem kom inn í hópinn nokkrum árum síðar, en hún lést fyrir tveimur árum. Kristín var náinn samstarfsmaður Jónasar alla tíð. Hiklaus og djarfur Árið 1996 var ég ráðin til að sjá um menningarefni á DV. Þá urðum við Jónas Kristjánsson samstarfsmenn. Hann var ekki alltaf auðveldur í sam- vinnu en ævinlega var hann réttsýnn og skarpur í athugunum. Hann tvínónaði heldur ekki við að taka róttækar ákvarð- anir ef honum þótti nauðsyn krefja. Um það skal tilgreint eitt dæmi. Árið 2000 gerðist það í fyrsta skipti að konur voru í meirihluta þeirra sem hlutu Menningarverðlaun DV. Að venju birtist mynd af hópnum framan á blað- inu daginn eftir afhendinguna en þegar Jónas kom í vinnuna og skoðaði forsíð- una sem var í vinnslu kom í ljós að félagar eins verðlaunahafans höfðu lent inni á myndinni með henni þannig að kynjahlutfallið raskaðist. Jónas fok- reiddist, því hann var sérstaklega sáttur við þessa athyglisverðu niðurstöðu, og skipaði ljósmyndara á morgunvakt að breyta myndinni: eyða út af henni þeim sem ekki áttu að vera þar. Þetta var tæknilega sama aðferð og Stalín notaði á sínum tíma til að afmá Trotský af myndum en að því leyti vandaðri að Jónas lét færa hina til svo að ekki sæjust ummerki. Þar standa fjórar konur og þrír karlar með verðlaunagripi sína eins og rétt og skylt var. Jónas vildi alltaf hafa það sem sannara reyndist. Einar Már Jónsson Augnablikið Ég sat í skrifstofunni minni í djúpum hugleiðingum og einblíndi á vandamál sem farið var að sækja á mig svo mjög að fátt annað komst að: Augnablikið, eðli þess og stöðu í veröldinni og svo um leið tilveru þess, eða tilveruleysi. Heimspekingar hafa sagt að fortíðin sé liðin og ekki lengur til, framtíðin sé ókomin og ekki til ennþá, og því sé ekk- ert raunverulegt nema Augnablikið eitt, en það sé hins vegar svo stutt að svo til ógerningur sé að festa hendur á því, – og því meir sem reynt sé því meir virðist það renna manni úr greipum. Verður kannske að takmarka það við eitt tíma- atóm, eða er hægt að teygja það upp í tíma-mólekúl? Er það kannski eins og glampi af rafeind í glerhylki fullu af þoku? Ef þetta er hinn eini raunverulegi tími er hann býsna þunnur þrettándi og lítil ástæða til að gera sér rellu út af honum, en hvað er þá eftir af raunveru- leikanum sjálfum, hlýtur hann þá ekki að leysast upp? Í skrifstofunni var stein- hljóð þótt glugginn væri opinn. Ég horfði á glansandi hvítt píanóið til hægri, troðfullar bókahillurnar fyrir TMM_3_2018.indd 110 23.8.2018 14:19
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.