Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.2018, Page 116

Tímarit Máls og menningar - 01.09.2018, Page 116
H u g v e k j u r 116 TMM 2018 · 3 það ekki of þröngt, aparnir hafa sinn söng, býflugurnar sína lipurlegu rúmbu, og eitthvað kyrja hvalirnir í djúpunum. Nei, það sem skapar sérstöðu Mannsins, að því best er vitað, er það að hann segir sögur í tíma og ótíma, hann gerir reyndar fátt annað, enda er það grund- völlurinn að tilveru hans sem manns, og því væri hann réttast nefndur Homo insipiens fabulator. En þessi hæfileiki, eða kannski árátta, er beggja handa járn, það þarf menntun og sérstaka þjálfun til að henda reiður á þessu öllu. Því eru sagnfræðingar nauðsynlegir. Svanur Kristjánsson Leitin að sann- leikanum og íslensk stjórn- málafræði Ég man varla eftir mér öðruvísi en með brennandi áhuga á stjórnmálum, eink- um íslenskum stjórnmálum, og ákafan í stuðningi við Sjálfstæðisflokkinn. Sex- tán ára gamall gekk ég í Fylki, félag ungra Sjálfstæðismanna á Ísafirði. Eftir einn vetur í Menntaskólanum á Akur- eyri bauð ég mig fram sem formann skólafélagsins og sigraði eftir velskipu- lagða kosningabaráttu þar sem vinur minn – kommúnistinn Guðmundur Ólafsson – var í lykilhlutverki. Næst var að fara í lögfræði í Háskólanum – starfa í Vöku, félagi lýðræðissinnaðra stúd- enta, setjast að á Ísafirði eftir stúdents- próf og verða stjórnmálamaður, þing- maður, jafnvel flokksformaður og for- sætisráðherra. Eftir stúdentspróf 1967 fór ég til Bandaríkjanna í B.A. nám með stjórn- málafræði sem aðalgrein. Ætlaði að vera þar í einn vetur. 1967 – Heimsstyrjöldinni lauk ein- ungis rúmum tuttugu árum áður. Þar féllu um 50–80 milljónir manna eða 3% jarðarbúa á þeim tíma. Einn af kennur- um mínum í stjórnmálafræði var Theo- dore Mitau. Gyðingur, fæddur 1920; ólst upp í Berlín en var bjargað til Banda- ríkjanna fjórtán ára gömlum. Fjölskylda hans öll fórst í Helförinni þegar nasistar með samverkafólki í mörgum löndum myrtu um sex milljónir gyðinga eða um tvo þriðju allra gyðinga í Evrópu. Mitau talaði aldrei við okkur í kennslustund- um um sjálfan sig eða hlutskipti gyðinga sérstaklega. Megináhersla hans var hins vegar augljós: Lýðræðið er alls staðar viðkvæmt. Öfgaöfl ógna lýðræðinu. Við verðum ætíð að standa vörð um mannréttindi allra. Annars er stutt í vanþróun lýðræðis – jafnvel hrun lýð- ræðis og réttarríkis. Sérsvið Mitau í stjórnmálafræði var greining á hugmyndaheimi stjórnmál- anna fyrr og síðar; á stjórnmálastefnum og stjórnmálaflokkum en umfram allt á þeirri siðfræði sem væri að baki allri hugmyndafræði. Markmið námsins var að kenna okkur gagnrýna hugsun og að takast á við krefjandi spurningar. Á einu heimaprófinu hjá Mitau kom eftirfarandi verkefni: „Það er margt líkt með hugmyndum Marteins Lúthers og nasista um ríkisvaldið. Fjallið um rökin með og á móti þessari fullyrðingu. Hver er þín niðurstaða? Rökstyðjið svarið.” Að sjálfsögðu var verið m.a. að vekja athygli á þeirri staðreynd að í kenning- um Lúthers er að finna sterkan þátt undirgefni og hlýðni við veraldlegt vald: Góð stjórnvöld væru blessun frá Guði og vont yfirvald refsing Guðs fyrir syndir vorar. Sjálfur tók Lúther virkan TMM_3_2018.indd 116 23.8.2018 14:19
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.