Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.2018, Page 61

Tímarit Máls og menningar - 01.11.2018, Page 61
„ Þa ð a ð s k r i fa b æ k u r TMM 2018 · 4 61 fyrir þessari þráhyggjufullu fyrirlitningu Hans Blævar á hugleysinu. Mamma hánar, Lotta, þorði ekki þegar það hefði skipt mestu. Hans Blær fyrirlítur samt ekki móður sína – hán reynir ítrekað að elska hana og sennilega er hán ekki mannlegri í afstöðu sinni til neins annars – en hán fyrirlítur hugleysi hennar og það að hún hafi brugðist sér. Þegar hán leikur sér að móður sinni er það líka oftar en ekki til þess að fá hana til að sýna af sér hugrekki, etja henni út í átök – hán vill að hún sýni sér að hún geti tekið slaginn fyrir sig. Þessi hvöt brýst út í hálfgerðum sadisma, en hvötin sem slík er ekki röng. En þessi skilyrðislausa ást, er hún til? Fjölskylda er fyrir mér fyrst og fremst bakland. Það er fólkið sem stendur með þér jafnvel þótt allir aðrir gefi skít í þig. Ég segi ekki sama hvað – en næstum sama hvað. Þar ríkir ekki alltaf skilyrðislaus ást en þar ríkir samstaða þegar ástin þverr. Maður getur hætt að elska og skilið við maka sinn, misst samband við börnin sín, rifist við systkini sín og reiðst foreldrum sínum en maður á samt að standa með þeim þegar þau þurfa á því að halda. Þess vegna ristir það líka svo djúpt þegar það bregst – engin svik eru verri. Og hvað sem öllu öðru líður leitar Hans Blær líka til móður sinnar þegar allt fer til andskotans. Og hán gerir sitt besta til að eiga í eðlilegum sam- skiptum við hana – það lánast nú bara svona og svona, kringumstæðurnar eru erfiðar, en hán reynir samt. Þrátt fyrir að Hans Blær sé væntanlega ekki málpípa höfundar þá skín samt í gegn ákveðin þjóðfélagsádeila. Til dæmis þar sem talað er um aðkomu- leysi ríkisins í stofnunum sem sinna utangarðsfólki og þeim sem minna mega sín: Ríkið tímdi ekki að reka góðgerðarstofnanir sjálft – ekki meðferðarheimilin, fátækra- hjálpina, kvennaathvörfin, utangarðsmannaskýlin eða annað sambærilegt – og fékk þjónustuna ódýrar hjá sjálfboðaliðum og hugsjónafólki, sem þurftu ekki að gera til sín sömu kröfur og hið opinbera. Þegar eitthvað fór úrskeiðis gátu stjórnmálamenn- irnir líka varpað ábyrgðinni frá sér. (bls. 171) Hvar liggja mörk skáldskapar og þjóðfélagsádeilu? Ef markmið höfundar er að koma skoðunum sínum á framfæri er hann allavega kominn yfir mörkin. Sem þýðir ekki að skoðanir höfundar og sögu- persóna fari aldrei saman – við Hans Blær erum sammála um ýmislegt og ósammála um annað. Hán er hluti af mér en hán er ekki ég, hán er hán og skoðanir hánar ráðast af skapgerð hánar. Og hán er ekki búið til svo ég geti sannað eitthvað sem mér fannst fyrir – heldur til þess að skoða einhverja virkni í heiminum. Sá sem skrifar skáldsögu fær aðgang að tilfinningalífi lesenda sinna – honum er beinlínis ætlað að koma róti á það – og það er ábyrgðarstaða, TMM_4_2018.indd 61 6.11.2018 10:22
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.