Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1947, Blaðsíða 17
15
Læknar láta þessa getið:
Rvík. Búast má við, að eitthvað af fæðingum kunni að vera van-
talið, þvi að koma mun fyrir, að ljósmæður, sem í raun og veru starfa
ekki, taki á móti barni og barni án þess að láta í té skýrslu.
Hafnarfi. Fólkinu fer fjölgandi í héraðinu.
Akranes. Fólksflutningur er allmikill til bæjarins og nokkru meiri
en mannfjölgunin ber með sér, þar sem nokkrir hafa flutzt til Reykja-
vikur. Dánartalan lág, að mestu leyti gamalmenni.
Kleppjárnsreykja. Héraðsbúum heldur fækkað á árinu.
Ólafsvíkur. Fólki fækkaði, en ekki mikið.
Búðardals. Fólkinu fækkar enn, þó mun minna en síðast liðið ár.
Reykhóla. Alltaf fækkar fólkinu heldur og það, sem verra er, að
fækkunin er mest á fólki á bezta aldri, en börn og gamalmenni fylla
í skörðin.
Bíldudals. Fólksfækkun heldur áfram í héraðinu og búizt við all-
mikilli fækkun á næsta ári. Gert er ráð fyrir, að 5—6 fjölskyldur
flytjist þá burt úr héraðinu. Fólkstala hefur þó ofurlítið aukizt í kaup-
túninu, en hins vegar hríðfækkar í sveitunum.
Þingeyrar. Enn þá fækkar í héraðinu, og mun líklega halda svo
áfram, sem víðar, því að þótt fleiri fæðist en deyi, vegur sá mismunur
ekki upp á móti fjölda þeirra, sem brott flytjast. Fólksfækkunin er
meiri í sveitinni en í kauptúninu.
Flateyrar. Fólki hefur ekki fækkað í héraðinu á þessu ári, og má
það teljast athyglisvert. Mun það fremur stafa af erfiðleikum á þvi
að fá inni í Reykjavík en bættum afkomumöguleikum heima fyrir.
Isafi. Fólkinu fjölgaði heldur í kaupstaðnum þetta ár, en fækkaði
í Eyrarhreppi, rúmlega sem því svarar.
Ögur. Fólkinu heldur áfram að fækka jafnt og þétt, og lagðist 1 jörð
í eyði á árinu. Þó er afkoma almennt góð, og nýleg hús standa auð.
Hesteyrar. Fólkinu heldur áfram að fækka, og er nú Sléttuhreppur
að syngja sitt síðasta lag; þar eru nú aðeins eftir 88 sálir af 431 1942
eða fyrir 5 árum, og eru horfur á, að mestur hluti þess, sem eftir er,
fari á næsta ári.
Hólmavikur. Fólki hefur fækkað í héraðinu um ca. 4% á árinu.
Fólksfjöldi nú svipaður og árið 1944, en frá þeim tíma hefur fólkinu
fjölgað þangað til nú. Barnkoma mun minni cn undanfarin 2 ár, sem
að vísu mun þá hafa verið óvenjulega mikil. Dánir á árinu eru 6, 3
nýburar og 3 gamalmenni.
Hvammstanga. Fólksfækkun heldur áfram í héraðinu, en lítils háttar
fjölgun á Hvammstanga. Fæðingar með meira móti. Manndauði svip-
aður og undanfarin ár.
Blönduós. Fólksfjöldi stóð því sem næst í stað. Ekki man ég til, að
nein jörð legðist í eyði, nema ef vera skyldi eitt kot, og er það meira
en segja má um flest önnur sveitahéruð. Barnkoman að þessu sinni
allt eins há í sveitum sem kauptúnum, enda var fæðingartalan langhæst
í Svinavatnshreppi, sem nú er alveg að komast úr kútnum að þessu
leyti. Manndauði heldur með minna móti. Meðalaldur þeirra innan-
héraðsmanna, sem dóu á árinu, var 76 ár.