Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1947, Qupperneq 95
93
IV-para: Þröng grind, en slapp þó við töng með því að gefa 0,2 cs
pitúitrin í æð á útfærslustiginu. Blæðing noklcuð raikil, en stöðvaðist
fljótt.
Stykkishólms. Fósturlát veit ég um 5 talsins í sept.—des. Fóstur-
lát virðast mér all-algeng, en ekki hafði ég þó ástæðu til að ætla í
neitt skiptið, að konurnar hefðu komið fósturlátunum af stað af
ásettu ráði.
Búðardals. Var sóttur 6 sinnum til fæðandi kvenna, i 2 skipti að-
eins til að deyfa. Inertia uteri að hinum 4. Einni þeirra gekk sérstak-
lega treglega, 24 ára primipara inni i Haukadal. Stóð fæðing yfir nærri
því í 3 sólarhringa. Belgir sprungu snemma í fæðingu, og fékk konan
fljótt hita. Á 3. sólarhring tók ég harnið með töng. Post partum féklc
konan mikla hlæðingu, og leit um hrið út fyrir, að hcnni mundi blæða
út. Loks tókst þó að stöðva blæðinguna. Sótthiti var mjög hár lengi
vel en Jækkaði þó furðu fljótt við pensilín og súlfagjöf. Barnið var 59
sm á lengd og vó 5250 g. Því heilsaðist vel. Primipara 26 ára: Fæðing
stóð yfir í 2 sólarhringa. Gerð var episiotomia. Asphyxia livida hjá
barninu, er það fæddist, er síðar breyttist í asphyxia pallida. Gerðar
voru lífgunartilraunir, og tókst loks að lífga harnið. 29 ára multipara
hafði blæðingu intra partum, sem varð þó aldrei alvarleg og þurfti
engrar aðgerðar við. Engin fósturlát á árinu, sem mér sé kunnugt um.
Bildadals. 7 sinnum var mín vitjað til fæðandi kvenna, 4 sinnum
aðeins til að deyfa konuna í lok fæðingar, einu sinni vegna inertia
uteri, einu sinni lil þess að sauma saman allstóra spangarrifu og einu
sinni vegna erfiðrar og ganglausrar fæðingar. Ivona sú var 30 ára
I-para, blóðlilil, slöpp og ræfilsleg. Þegar ég kom til hennar, var hún
húin að basla við að fæða talsvert á annan sólarhring, og hafði lítið
gengið. Sótt mátti heita alveg fallin niður og konan orðin mjög þreytt
og uggandi um sinn hag. Við athugun kom í Ijós, að grind var talsvert
þröng, full iitvíkkun var komin, en höfuð fósturs stóð enn þá nokkuð
ofarlega í grind. Ég gaf nú tvisvar pitúitrín með kluklcustundar milli-
bili, en án verulegs árangurs. Þorði ég þá ekki að biða lengur, þar sem
fósturhljóð voru orðin mjög léleg og konan sömuleiðis. Svæfði ég nú
konuna og lét síðan ljósmóður viðhalda svæfingunni, lagði siðan á háa
töng, og gekk það sæmilega, náði góðu tangarhaldi á hausnum, og gekk
síðan framdrátturinn sæmilega, en konan rifnaði talsvert, alveg að
anus. Siðan saumaði ég saman rifuna, eins vel og ég gat við þcssar
erfiðu aðstæður, en þetta var i stofukytru úti í sveit við lélegt lampa-
Ijós. En því miður kom í ljós seinna, að myndazt hafði recto-vaginal
fistill. Annars heilsaðist barni og móður sæmilega eftir aðgerðina, og
seinna var konan send á Landakotsspítala, þar sem gert var við fist-
ilinn, og er nú fyrir nokkru komin heim og er við góða heilsu. Ann-
ars ekkcrt sérstakt um fæðingar að segja. Ekki vitað um fósturlát á
árinu. Alltaf nokkrir, sem nota getnaðarvarnir. Aðallega notaðir
smokkar.
Bingeyrar. í einum hreppi héraðsins varð engin fæðing, enda fáar
eða engar konur í barneign búsettar þar lengur. Læknir var viðstaddur
6 fæðingar, aðallega vegna svæfingar. Hjá einni konu stóð fæðing all-
lengi vegna inertia uteri primaria. Pitúitrínsprautur vcrkuðu hægt, en