Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1947, Blaðsíða 208
206
hinum mesta sóðaskap og vandræðum. Heilbrigðisnefnd hefur fylgt
því mjög fast eftir, að þessu yrði kippt í lag sem allra fyrst og sent
ítrekuð skrif um þetta til bæjarstjórnar og bæjarráðs, og með þeim
árangri, að nú hefur bæjarstjóri fyrirskipað, að hafizt skuli handa
um verk þetta. Til skrifstofu héraðslæknis og heilbrigðisfulltrúa
bárust á árinu 874 kvartanir, og var hægt að ráða bót á sumu þegar
í stað, en annað reyndist erfiðara viðfangs. Allar voru kærur þessar
og kvartanir afgreiddar eins fljótt og vel og tök voru á.
Seyðisfj. Heilbrigðisnefnd starfað eins og undanfarið. 3 fundir
haldnir.
Hafnar. Kosin 5 manna heilbrigðisnefnd á árinu fyrir Hafnarhrepp.
Kom hún saman og samdi uppkast að heilbrigðissamþykkt fyrir Hafnar-
kauptún og nálægjar eyjar.
Vestmannaeyja. Nefndin reynir með aðstoð heilbrigðisfulltrúans að
koma þrifnaði í betra horf, en róðurinn sækist seint. Samt virðist mér,
að úti á landi sé ástandið viða verra en hér.
20. Bólusetningar.
Tafla XIX.
Skýrslur og reikningar um bólusetningar hafa borizt úr 34 héruð-
um, en engar úr 17 (Borgarnes, Reykhóla, Flateyjar, Patreksfj.,
Bíldudals, Þingeyrar, Hesteyrar, Árnes, Hólmavíkur, Blönduós, Siglu-
fj., Ólafsfj., Kópaslcers, Egilsstaða, Seyðisfj., Nes og Víkur), og munu
þær yfirleitt hafa farizt fyrir i þessum héruðum. Ná skýrslurnar að-
eins til 1630 frumbólusettra og 1181 endurbólusettra barna. Iiom
bólan út á 68% hinna frumbólusettu og 60% hinna endurbólusettu.
Læknar láta þessa getið:
Hafnarfj. Bólusetning fór fram vor og haust. Engin börn veiktust al-
varlega.
Akranes. Fór fram í öllum umdæmum á venjulegum tíma. Svo sem
skoðun ber með sér, kom bólan ekki út á frumbólusettum börnum á
Akranesi. Aftur á móti er útkoman sæmileg á endurbólusettu börn-
unum. Sama bóluefni var notað i hvort tveggja og bólusetjari hinn
sami.
Kleppjárnsreykja. Bólusetningarskýrslur fékk ég aðeins úr einu
ljósmóðurumdæmi.
Búðardals. Bólusetningarskýrslur hafa borizt úr öllum lireppum
nema Skarðsstrandarhreppi og Ivlofningshreppi.
Reykhóla. Bólusetning fór ekki fram í héraðinu á árinu, og mun
það hafa verið vegna farsótta.
Þingeyrar. Kúabólusetning féll niður vegna mislingafaraldurs i hér-
aðinu.
Flateyrar. Bólusetning fórst fyrir i Mosvallahreppi vegna mislinga-
faraldurs.
Bolungarvikur. Frumbólusetning fór ekki fram vegna þess, að misl-
ingar gengu í nágrannahéraðinu, og búast mátti við þeim inn í héraðið
bráðlega. En fermingarbörnin voru endurbólusett fyrir Hvitasunnu.
Ögur. Ljósmæður bólusettu í 2 umdæmum af 5. Vegna laseika var