Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1947, Qupperneq 84
82
andi. Tannslcemmdir virðast mér einnig fara minnkandi. Að öðru
leyti þetta: Sjóngallar 2, húðkvillar 3, kok- og hálseitlaþroti 19.
Blönduós (186). Engu barni þurfti að meina skólavist vegna berkla
eða annarra næmra sjúkdóma, en þó bar enn nokkuð á lús. Fer þó sífellt
minnkandi, og höfðu hana að þessu sinni ekki nerna 10%, eða öllu
heldur nit. Sumir skólastaðirnir eru nú lúsalausir með öllu, en erfið-
ast reynist að útrýma henni úr kauptúnunum. Hef ég nú tekið upp
þá reglu að hafa sérstaka lúsaskoðun um miðjan vetur í kauptúna-
skólunum til þess að börnin og aðstandendur þeirra hafi meira að-
hald en áður var. Tannskemmdir eru annars langalvarlegasti kvill-
inn, en smásjóngallar ýmiss konar þar næst. 22% af börnunum voru
líkamsgallalaus. Hryggskekkja 1, rifjaskekkjur 11, kúpubak 2, kolc-
eitlaauki 10, offita og kiðfótaburður 2, kirtlabólga 2, augnhvarma-
bólga 2, strophulus 1, psoriasis 1, naevus 1, tic 1. Sjóngalla af ýmsu
tagi höfðu 58, en líkamsgallalaus voru 41.
Sauðárkróks. (254). Eitlaþrota á hálsi (flest á lágu stigi) höfðu
188 börn, kirtilauka í koki 81, sjóngalla 54, blepharitis 4, hordeolum
1 og heyrnadeyfu 1.
Hofsós (129). Algengustu kvillar, eins og áður, eru tannskemmdir,
eitlaþroti og óþrifakvillar. Lx'is og nit virðast mér þó heldur fara
minnkandi.
Ólafsjj. (141). Lítilfjörlegan eitlaþrota höfðu 39 börn. Hypertrophia
tonsillarum höfðu 33, scoliosis 2, albinotismus 2, obesitas 1, vestigia
rachitidis 6, strabismus 2.
Dalvíkur. 4 skólabörn urðu að hætta námi vegna berklaveiki; 2
þeirra eru á sjúkrahúsi (annað á hæli).
Akureyrar (943). í Barnaskóla Akureyrar voru þessir kvillar
helztir: Kokeitlar 86, hryggskekkja 32, sjóngalli 39, slimhljóð í lung-
um 40, mikro-adenitis colli 35, lús eða nit 36, ofsaldáði 8, rheu-
matismus 6, naflakviðslit 6, luxatio coxae congenita 1, adipostitas 8,
málhölt 3, nárakviðslit 6, holgóma 1, deformeraður thorax 6, pes
planus 18, eczema 5, imbecilitas 4, heyrnardeyfa 5, kryptorchismus 2,
Calve Perthes 1, morbus cordis 2, osteochondritis juvenilis 1, psoriasis
2, herpes labialis 2, fiskahúð 3, scabies 1 og rangeygð 2 börn. Tann-
læknar skólans voru þeir Kurt Sonnenfeld og Ringsted, og samkvæmt
skýrslum þeirra hafa þeir gert við 327 fullorðinstennur. Rótaraðgerð
35 sinnum og dregnar 10 fullorðinstennur. Gert við 17 barnatennur
og dregnar 36 barnatennur. I barnaskólum utan Akureyrar
voru helztu kvillar: Ivokeitlastækkun 48, sjóngalli 11, hryggskekkja 6,
slimhljóð við hlustun 2, mikroadenitis 9, eczema 1, heyrnardeyfa 1,
pes planus 4 og krónisk liðagigt 1. í öllum skólum bæjarins og í læknis-
héraðinu voru gerð berklapróf, og öll þau börn og unglingar, sem
berklajákvæð voru, voru rannsökuð nánar á Heilsuverndarstöð Akur-
eyrar, annað hvort gegnlýst eða röntgenmynduð.
Grenivíkur (51). Börnin öll sæmilega hraust, en mikið bar á tann-
skemmdum. Hypertrophia tonsillaris 13, smáeitlar á hálsi 32, adi-
positas 2, vörtur 2, hryggskekkja 2, flöt il 1, nærsýni 3, kvef 6, til-
eygð 2, urticaria 1 og nit 2 frá sama heimili.
Breiðumýrar (110). Börnin yfirleitt hraust. Bar þó mikið á tann-