Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1947, Blaðsíða 32
30
Hvammstanga. Bárust á 3 eða 4 bæi með aðkomufólki, eu breiddust
ekki út. Einn sjúklinganna, 10 ára telpa, fékk colitis ulcerosa upp
úr mislingunum og var lengi að ná sér. Batnaði þá fyrst, er ég hafði
náð í sænska lyfið, saiasopýrin, með hjálp Lyfjaverzlunar ríkisins
og fór að gefa henni það.
Blönduós. Komu í Höfðakaupstað í apríl, en þá fengu þá ekki nema
ein ung hjón, og var maðurinn nýkominn úr Reykjavík. Síðast í maí
fékk þá ung stúlka uppi í Svartárdalsbotni, sömuleiðis nýkomin að
sunnan, og fékk hún lungnabólgu með og varð allmikið veik. Systkini
hennar smituðust, en veikin breiddist ekki út, þótt ýmsir þar efra í
dölunum hafi ekki fengið hana fyrr, einkum ungt fólk. Bær þessi var
afskekktur og því hægara að verjast. í júlí fékk hana ungur maður á
Blönduósi, og í ágúst og september kom þar fyrir eitt tilfelli hvorn
mánuðinn, í krökkum, en úíbreiðsla varð engin. Það virðist því svo
sem veikin hafi 3—4 sinnum komið að inn í héraðið, án þess að ná
nokkurri fótfestu, enda hafa nú flestir fengið hana, sem til fullorðins-
ára eru komnir, þótt enn séu á afskekktum býlum fjölskyldur, þar
sem fáir eða engir hafa haft hana.
Sauðárkróks. Mislingar bárust hingað í maí og voru svo viðloða
fram í september, en breiddust hægt út. Verður þeii-ra svo ekki vart
aftur fyrr en seint í nóvember, að þeir berast hingað frá Reykjavík.
Breiðast þeir þá ört út, og verður allmikill faraldur að þeirn, sem
heldur svo áfram fram yfir áramót. Veikin lagðist allþungt á, en
enginn dó.
Hofsós. Bárust í Hólaskóla og á nokkur heimili í Fljótum. Gengu
ekki sem faraldur.
Ólafsfj. Mislingar bárust hingað í maí (1 tilfelli skráð i marz) með
stúlku, sem kom að sunnan. Fóru hægt yfir til að byrja með og virt-
ust vera að deyja út í ágúst, en færðust svo í aukana i september og
náðu hámarki í nóvember, en dóu svo út síðast i desember. Voru nokk-
uð þungir á sumurn börnum, og fengu sum 41 stigs hita. Fullorðna
fólkið, sem fékk þá, fékk mest rúmlega 39 stiga hita og slapp ágæt-
lega. Fylgikvillar voru litlir, eyrnabólga í nokkrum tilfellum. Eng-
inn dó.
Dalvíkur. Flestir sjúklinganna voru allþungt haldnir, og náði hit-
inn oft nær 41 stigi. Fylgikvillar voru engir og afturbati í öllum til-
fellunum. Oflast var gefin codeinsaft við tióstairum og súlfatöflur til
varnar lungnabólgu og öðrum fylgikvillum.
Akureijrar. Gengu hér allt árið nema janúar og febrúar og voru
mikið útbreiddir síðara hluta nóvember og í desember. Fólk, sem
fékk mislinga að þessu sinni, varð yfirleitt mikið veikt, meðan á
þeim stóð, en mjög lítið var um fylgikvilla og engin dauðsföll af völd-
um sjúkdómsins. Nokkuð notað reconvalescentserum með góðuin
árangxú.
Grenivíkur. Bárust hingað 7 sinnum á árinu, en breiddust ekkert út.
Voru vægir, enda gefið nokkuð af mislingaserum. Mörg heimili reyndu
að verjast þeim, þar sem eldra fólk var, er ekki hafði fengið þá, eða
ungbörn.