Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1947, Qupperneq 53
51
berklaprófuð (Moro), um lcið og skólaskoðun fór fram, og voru við-
komandi kennarar beðnir að athuga útkomu, en skilagrein hefur ekki
komið frá þeim öllum. 1 barn er var í fyrra -r-. ekki veit ég,
hvernig það hefur smitazt.
Reijkhóla. Aðeins 1 kona skráð á árinu með tuberculosis lympho-
glandularum colli. Fór til Reykjavíkur í haust og fékk þar geislameð-
ferð. Við skólaskoðun reyndust 4 börn Moro -)-, en virðast öll vel
frísk. Smitun þeirra gat ég ekki rakið. Hef gert Moropróf á börnum
innan skólaaldurs, þar sem mig hefur grunað veikina, en alltaf er nú
-v- útkoma.
Bíldudals. 1 karhnaður skráður í berklabók, hinn sami og síðast
liðið ár. Lá hann mikið af árinu á Landakotsspítala í bakgibsi, en
kom heim nokkru fyrir áramótin. Líður honum sæmilega.
Þingeyrar. Berklaskýrslan í ár er fyllri en 1946, og stafar það af
betri upplýsingum og af því, að nú er ég „hnútum kunnugri“ en áður.
7 nýsmitanir, þar af 2 sennilega utan héraðs. Loftbrjóstaðgerðir 55
á 2 sjúklingum. Gegnlýsingar 47. Blóðsökk og hrálcarannsóknir gerðar,
þegar þurfa þótti, sem og nokkrum sinnum sent í ræktun. Ekki er í
öllum tilfellum hægt að finna þá, sem smita, og er ekki ólíklegt, að
einhver gangi laus. Væri ekld úr vegi að endurtaka berklaskoðun á
héraðshúum eins og þá, sem gerð var, þegar Ægir kom hér um árið.
Flateyrar. Byggðarlagið verður nvi árlega fyrir áföllum af völdum
berklanna. I Súgandafirði hefur borið töluvert á berklaveiki á síðustu
árum, en í Önundarfirði hefur ástandið mátt teljast gott í þessum
efnum um langt skeið, þar til á síðast liðnu vori. Þá veiktist S. E.,
varð mjög smitandi og fór á Vífilsstaði. Skömmu seinna veiktist kona
hans og fór söxnu leið. Af þessum sökum voru öll börn á Flateyri á
aldrinum 1—15 ára berklaprófuð í tvennu lagi, þau sér, sem náð
höfðu skólaaldri. Af yngri flokknum reyndust 3 nýsmituð, öll úr um-
hverfi S. Af eldri flokknum voru 3 nýsýkt, bróðurdóttir konu S. og
tvennt, sem óvíst er um smitun hjá. Allt umhverfi S. og allra þeirra,
sem nú voru jákvæðir í fyrsta sinn, voru sendir til skyggningar á
ísafjörð, og sást víst ekkert á öllu því fólki. 13 ára telpa fékk infiltrat1)
i vinstra lunga upp úr mislingunum og hefur legið hér á sjúkrahús-
inu. Kona fékk pleuritis exsudativa, jafnframt því sem gömul berkla-
skemmd í lunga tók sig upp. Báðar á góðum batavegi. Eitthvert ör-
yggi mun sennilega felast i því að hafa berklavarnarstöð á ísafirði fyrir
kaupstaðinn sjálfan, en nærliggjandi þorp munu hafa mjög lítil not
af þessari stöð, einkum vegna þess, að frá stöðinni fást engar fréttir
þeim, sem þangað eru sendir til athugunar, nema frásögn þeirra
sjálfra við heimkomuna. Það er aðkallandi nauðsynjamál, að hvert
beknishérað landsins sé búið gegnlýsingartækjum og að sérfræðingur
11 vegum berklayfirlæknis fari árlegar yfirlitsferðir um landið.
. Bolungarvikur. 30 ára kona hafði verið send héðan á sjúkrahús
Isafjarðar vegna annars sjúkdóms en berklaveiki, en við athugun
þar fannst skemmd i öðru lunga. Þaðan er hún síðar send á Vífils-
1) Stnngið er upp á, að infiltrat og infiltratio heiti á íslenzku íferð og infiltrerað
l»á ifarið. Má þetta minna á orðið ígerð, sem er ekki fjarlægrar merkingar. Merk-
ingarskyldleikann má festa með þcssum orðskviði: Fyrr er ifcrð en ígerð.