Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1947, Qupperneq 201
199
að reistur yrði nokkuð stór héraðsbarnaskóli með heimavist. Verður
það að teljast mikið framfaramál, því að ef slíkur skóli yrði reistur,
væri unnt að veita börnunum betri og aukna fræðslu, t. d. um heil-
brigðismál, leikfimi, sund, handavinnu, söng o. s. frv. Hægt væri að
gefa börnunum lýsi og ljósböð. Ekkert af þessu er gert, eins og sakir
standa. Auk þess yrði heilbrigðiseftirlit með börnunum auðveldara
og betra.
Vestmannaeyja. Hjúkrunarkona er við barnaskólann. Börnin fá lýsi
skammdegismánuðina og kvartsljós, þau, sem helzt hafa þess þörf.
Selfoss. Stórir og myndarlegir barnaskólar voru reistir í 3 hreppum,
í Hveragerði, Villingaholtshreppi og Gaulverjabæjarhreppi. Skólahúsið
í Hveragerði ber mjög af, livað snertir stærð og vandaðan útbúnað.
Er það furðu mikil bygging.
12. Barnauppeldi.
Læknar láta þessa getið:
Búðardals. Barnauppeldi er misjafnt, og fer það eftir heimilunum.
En einn er sá misbrestur í uppeldi, sem ég rek mig víða á, en það er
hve börn eru látin fara seint að hátta, og fá þau þar af leiðandi ekki
nógan svefn; er ég viss um, að slíkt stendur þeim fyrir þrifum.
Þingeijrar. Barnauppeldi er í mörgu ábótavant. Börnin virðast hafa
of mikið frjálsræði, og veldur það uppivöðslusemi og skorti á hátt-
prýði. Allt of almennt, að börn séu á ferli langt fram eftir kvöldi.
Flateyrar. Mun í allgóðu lagi, meðan áhrif foreldranna mega sín
meira en áróður bíóanna og annarra menningarfyrirtækja. Ungling-
arnir hafa yfirleitt of lítið að gera og ltunna ekki að verja tímanum
sem skyldi.
Blönduós. Mun vera með ekki ósvipuðum hætti hér og annars stað-
ar, þar sem líkt hagar til. Stundum ala börnin foreldrana upp.
Sauðárkróks. Virðist vera um of mikið sjálfræði að ræða.
Ólafsfj. Lausabragur mun vera á barnauppeldi. Margar húsmæður
vinna utan heimilis, bæði á frystihúsum og við línuverk.
Grenivikur. Barnauppeldi mun víðast vera sæmilegt. Þó virðist mér,
að of mikill tími fari í leiki, svo að lítill tími verður eftir til náms, og
börnin oft orðin uppgefin eftir alla leikina.
Seyðisjj. Víða þykir þvi ábótavant. Frjálsræðið ef til vill fullmikið.
Vestmannaeyja. Víða ábótavant. Gengur treglega að kenna börnum
og unglingum mannasiði.
13. Meðferð þurfalinga.
Læknar láta þessa getið:
Þingeyrar. 1 alla staði eins góð og tök eru á.
Blönduós. Yfirleitt góð, eftir því sein við verður komið. Getur þó
orðið óviðunandi, ef þurfalingur er ósjálfbjarga og ekki er hægt að
koina honum á sjúkrahús, en húsinóður um megn að hjúkra honum
sem skyldi. Ég hef séð þess dæmi.
Sauðárkróks. Góð.
Ólafsfj. Þurfalingar fáir, en vel fyrir þeim séð.
Grenivikur. Góð.