Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1947, Blaðsíða 88
86
setrið var flutt að Egilsstöðum. Mun því að mestu valda, að nú situr
læknir miðhéraðs og á krossgötum. Langt er þó til yztu marka hér-
aðsins. Bílleiðin til efstu bæja Jökuldals 112 km, yztu bæja í Hjalta-
staðaþinghá, Tungu og Jökulsárhlíðar allt að 60 km.
Nes. Fólk virðist mjög kvartsárt, kvartar oft af litlu og óverulegu
tilefni. Öðru máli er þó að gegna um sveitirnar, einkum þá, sem fjarst
eru læknissetri og erfitt eiga um læknissókn, en þar bindur fólkið sjálft
um smávægileg meiðsli og kann betur að hjálpa sér sjálft, þegar eitt-
hvað er að, og mun svo vera um margar sveitir enn. I kaupstaðnum
þarf ekki annað en hringja í síma: kemur þá Iæknirinn, og er ekki
hirt um erfiðleika hans í ófærð og dimmviðrum, þótt tilefni kvaðn-
ingar hafi lítið verið eða ekki neitt. Að mínum dómi er þetta einn aðal-
ókosturinn við fyrirkomulag sjúkrasamlaganna.
Vestmannaeyja. Aðsókn að læknum með meira móti á árinu vegna
inflúenzu, kvefsóttar og mislinga í sumar. Erlend fiskiskip eru nú
komin á fiskimiðin. Bar á taksótt í færeyskum skútum og inflúenzu.
Leita skipin oft hafnar hér vegna sjúkra manna og slasaðra. Eins og
undan farin ár tel ég mjög brýna nauðsyn á, að sóttvarnarhús verði
reist hér.1) Það þolir enga bið. I byrjun vertíðar varð að einangra
sjúkling í fangaklefa, en hann hafði fengið mislinga um borð í skipi
og engin tök á að einangra hann annars staðar. Þar sem margir sjó-
menn, að komnir úr sveit, höfðu ekki fengið mislinga, var gripið til
þess ráðs í sárri neyð, og smitaðist enginn á vertíð af veikinni. Sjúk-
lingurinn var þungt haldinn, gat ekki verið um borð í skipinu og kaus
áðurgreindan verustað fremur en að vera um kyrrt um borð. Sjúkra-
húsið er svo yfirfullt á vertíð, að engin tök eru á að einangra sjúk-
linga þar.
Keflavíkur. Aðsókn að læknum, einkum á vertíðinni, er svo mikil,
að enginn tími er til neins annars, og er það oft með herkjum, að
hægt sé að Ijúka aðkallandi störfum, áður en langt er liðið nætur.
Um lestur í fa^inu eða sér til annars fróðleiks er ekki að ræða. Maður
hleypur lauslega yfir dagblöðin í rúminu um miðnættið, oft slitupp-
gefinn. Eykur það mikið á erfiði okkar læknanna beggja að þurfa að
sjá um alla samsetningu og afgreiðslu lyfja sjálfir.
F. Augnlækningaferðir.
Samkvæmt lögum nr. 12 25. janúar 1934 ferðuðust 4 augnlæknar
um landið á vegum heilbrigðisstjórnarinnar: Kristján Sveinsson,
augnlæknir i Reykjavík, um Vestfirði, Helgi Skúlason, augnlæknir a
Akureyri, um Norðurland, Bergsveinn Ólafsson, augnlæknir í Reykja-
vík, um Austfirði, og Sveinn Pétursson, augnlæknir í Reykjavík, uin
Suðurland. ________
1) ESa væntanlega öllu heldur, að sjúkrahúsið færi svo út kvíarnar, að þai
verði við komið nauðsynlegri einangrun sjúklinga, þegar þörf krefur. Svo þur a
öll kaupstaðarsjúkrahús að vera úr garði gerð. Litil ráðdeild væri að reka a
óþörfu tvær óhagsýnilega smáar stofnanir fyrir eina betur rekstrarhæfa.