Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1947, Blaðsíða 212
210
og um dánarorsök var enginn vafi í neinu tilfelii. 6 sinnum mælt alkó-
hól i blóði, og í öllum tilfellum á bílstjórum eða mótorhjólreiða-
mönnum.
Hafnar. Skoðunargerðir framkvæmdar tvisvar á sjóreknum líkum
karlamanna (Hvanneyjarslysið).
22. Sótthreinsanir samkvæmt lögum.
Tafla XX.
Samkvæmt sótthreinsunarreikningum, er borizt hafa landlæknis-
skrifstofunni, hefur sótthreinsun heimila aðeins farið 84 sinnum fram
á árinu á öllu landinu og langtiðast vegna berklaveiki (62%).
23. Húsdýrasjúkdómar.
Læknar láta þessa getið:
Hólmavikur. Bændur vænta þess, að þeim hafi tekizt að útrýma
mæðiveiki með niðurskurði sauðfjár á hinu sýkta svæði, en sá niður-
skurður var framkvæmdur síðast liðið haust með kaupum nýs fjár-
stofns.
Hvammstanga. Fjárskipti fóru fram í Bæjarhreppi, Staðar- og
báðum Torfustaðahreppum í haust. Var öllu fé slátrað á þessu svæði,
en nýr stofn fenginn frá Vestfjörðum. Auk mæðiveikinnar hefur ann-
ars borið talsvert á kvillasemi i búfé, t. d. lungnabólgu í kindum og
doða í kúm o. fl.
Blönduós. Húsdýrasjúkdómar eru hér margir og allmiklir. Eink-
um hafa þeir gert mikinn usla i sauðfjárstofninum, en nú var hafin
mikil áróðursalda fyrir því að skipta alveg um fjárstofn og byrjað
á þessu ári austan Blöndu, þar sem allt sauðfé á nær öllum bæjum
var skorið niður. Bændur á þessu svæði fengu þó ekki nýjan stofn
og voru sauðlausir, er sláturtíð lauk, en til stóð þá að drepa niður
allt fé á næsta ári milli Blöndu og Miðfjarðarár og fá nýjan fjár-
stofn af Vestfjörðum. Hugsa margir gott til þess, því að mjög eru
menn orðnir langþreyttir á vanhöldum fyrri ára. Sumir hirða þó
ekki um að fá nýjan sauðastofn, heldur snúa sér eingöngu að
nautgriparæktinni í bili, auk hrossaræktar, sem hér er mest á öllu
landinu, þvi að um 20% allra hrossa á Islandi eru nú i Húnaþingi.
Um kýrnar er það þó að segja, að þær þjást nú orðið af alls konar
menningarsjúkdómum, enda gefinn ýmiss konar fóðurbætir, einkum
sildarmjöl. Þær virðast og oft þola illa nýræktartöðuna, sem sprettur
upp af tilbúnum áburði. Kalkskortur virðist vera mjög samfara þess-
um fóðrunarháttum, þvi að það er mjög algengt, að kýr fái doða og
dæla verði í þær kalki. Mjög oft er leitað læknisráða vegna húsdýra
nú orðið.
Sauðcirkróks. Mæðiveiki og garnaveiki herja alltaf á fé bænda, og er
nú helzt í ráði almennur niðurskurður á sauðfé, að minnsta kosti
vestan vatna.
ólafsfj. Héraðið að mestu laust við hinar skæðu fjárpestir, en þó
hefur garnaveiki orðið vart. Allkvillasamt er þó i búfé. Ormalyf gefin