Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1947, Blaðsíða 28
26
Víkur. Með minna móti.
Vestmannaeyja. Gengið í öllum mánuðum ársins, mest í marz, apríl
og maí og svo haustmánuðina. Yfirleitt væg.
Eyrarbaklca. Fá tilfelli, væg.
Laugarás. Smáfaraldur seinna part sumars, en vægt og aðeins fá
tilfelli skráð.
Keflavíkur. Er talsvert algengt á börnum,
9. Inflúenza.
Töflur II, III og IV, 9.
Sjúklingafjöldi 1938—1947:
1938 1939 1940 1941 1942 1943 1944 1945 1946 1947
Sjúkl. 1301 5326 157 9670 625 12969 1949 863 5378 6997
Dánir „ 27 2 38 2 36 4 „ 7 10
Landsfaraldur inflúenzu hóf fyrir alvöru göngu sína í Rvík og ná-
grannahéruðum í febrúar, breiddist fljótlega út um allt land að kalla
og hafði að mestu lokið yfirferð sinni á miðju ári, þó að eftirhreytur
gerðu vart við sig hér og þar fram eftir sumri. Faraldurinn er talinn
vægur, fylgikvillar fátíðir og mannslát kennd inflúenzu með fæsta
móti, miðað við skráð tilfelli.
Læknar láta þessa getið:
Rvík. Nokkuð bar á inflúenzu fyrra part ársins. Varð hennar fyrst
vart ofurlítið í janúar, en óx svo nokkuð ört, náði hámarki í marz, en
dvínaði svo mjög fljótt og má heita alveg horfin í maílok. Sjúklingar
auðvitað margfalt fleiri en skráðir eru. Veikin yfirleitt mjög væg.
1 talinn dáinn.
Akranes. Kom í héraðið í marz og náði hámarki í apríl, en fjaraði
að mestu leyti út í maí. Hún gat ekki talizt verulega þung.
Ólafsvíkur. Mikið útbreidd frá marz til ágúst, að undan teknum
júlí (lítið).
Reykhóla. Nokkuð mörg tilfelli vormánuðina, en án fylgikvilla.
Bildudals. Brauzt hér út í marz og gekk fram í maí, var allútbreidd
í apríl, en fjaraði út seinna partinn í maí. Sumir voru mikið veikir.
Samfara þessu var allmikill kveffaraldur, og er líklegt, að í sltráningu
hafi allmikið ruglazt saman af kvefi og inflúenzu.
Þingeyrar. Barst í héraðið í marzmánuði frá Flateyri með sjómönn-
um héðan, sem þar höfðu komið við. Útbreiðsla veikinnar var hæg,
en stóð alllengi, langt fram á sumar. Hiti fór allhátt, en stóð stutt.
Eftirkvillar fáir, aðallega bólgur í afhólfum nefs og lungnakvef.
Flateyrar. Barst inn í héraðið seinna hluta marzmánaðar og fór
fljótt yfir. Yfirleitt mjög væg.
Bolungarvíkur. í apríl og maí er talin ganga inflúenza. Var fremur
væg.
ísafj. Tækifæri gafst gott til að fylgjast með kvefpestinni í þetta
sinn, vegna þess að ég var einn starfandi í bænum þessa dagana. Pestin
gekk mjög fljótt yfir, enda ekkert gert til að stöðva hana, meðal ann-
ars vegna þess, að hún hafði gengið fyrir ári síðan, og mátti þá búast