Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1947, Blaðsíða 108
106
yfir liöfuð drengsins. Fékk hann fract. ossis frontis og glóðarauga.
Upphandleggur marðist iila. Piitur á síldveiðum varð á milli skips og
nótabáts. Langatöng og baugfingur mörðust illa og tættust. Piltur varð
fyrir bilhurð, og sprakk fyrir á höfði hans ca. 5—8 sm langur skurður
ofanvert við eyra. 17 ára stúika fór upp í vindrellustaur, var hún að
gá til hesta. Vængur rellunnar slóst í enni hennar, og varð úr ca.
6 sm langur skurður uppi í hársrótum. 5 ára drengur klemmdist í
hurðarfalsi. Gómur lafði við fingurinn, og nögi losnaði. Maður var
að fást við benzínvéi í gangi í litlu skýli, sem var alveg lokað, og var
útblásturspípan í óiagi. Af þessum sökum varð loftið banvænt. Fór
nú manninum að verða ómótt, og fór hann þegar út úr skýlinu, en þá
leið yfir hann. Var honum komið inn, og jafnaði hann sig eftir nokk-
urn tíma, en var þó slappur nokkurn tíma á eftir. Auk hins framan
talda minna háttar sár 16, distorsiones 14, distorsiones & contu-
siones 6, skurðir 7, stungur 2, mör 8, smá brunasár 10 og korn í auga 2.
Breiðumijrar. Smáslys nokkuð tíð, en engar alvarlegar slysfarir
á árinu.
Þórshafnar. Slys alls konar 49. Corpora aliena 16.
Vopnafj. Engin stórslys urðu innan héraðs á árinu. Síldarbátur frá
Seyðisfirði kom hér inn með slasaðan mann. Hafði hann orðið fyrir
vír, sem skollið hafði á vinstra mjóalegg, flett húð frá beini niður að
öklalið, en síðan slitið af öklana, svo að úr liði gekk. Vissi il aftur, en
neðri endi sköflungsins stóð út úr sárinu. Gert var að sárinu til bráða-
birgða úti í skipi. Sárið hreinsað og þvegið úr sol. rivanoli, kippt i lið-
inn og lagður í gibsumbúðir. Fór báturinn síðan með manninn til
Seyðisfjarðar til frekari aðgerða. Samkvæmt upplýsingum frá héraðs-
lækninum á Seyðisfirði gekk vel með meiðslið og útlit fyrir, að nokkur
hreyfing fengist í liðinn. Innan héraðs: 2 menn duttu af bíl og féllu
í rot, en hlutu annars ekki teljandi áverka. 2 börn hlutu byltu og
féllu í rot. Maður varð undir hlaðinni jeppakerru og marðist mikið
á læri. Fract. claviculae 2, processus styloidei ulnae 1, melleolaris
sinistri complicata c. luxatione talocrurali 1, contusio 15, distorsio 15,
vulnus incisum 9, contusum 46, punctum 5, corpus alienum corneae
& conjunctivae 15, cutis 3, pharyngis 2, commotio cerebri 4, ambustio
II 9, congelatio II 1.
Egilsstaða. Talsvert var af smáslysum að vanda, tognunum, minna
háttar bruna, vulnera incisa og contusa. Fract. antibrachii 1, clavi-
culae 1, lux. cubiti 1, humeri 2. Maður hrapaði fram af klettum við
smalamennsku í myrkri og muggu. Fannst fljótlega og var fluttur til
bæjar, óbrotinn, en mikið marinn og með commotio cerebri. Bíll valt
út af vegi á miklum hraða í beygju. Stúlka, sem var farþegi í bílnurn
missti meðvitund og flumbraðist mikið í andliti. Bóndi var að dytta
að amboðum. Sporjárn skrapp af spýtu hjá honum og kom í vinstra
lófa af miklum krafti. Blæddi mikið, og hann gat ekki beygt Iöngu-
töng. Fyrst voru lagðar umbúðir á sárið, en blæðing hélt áfram, og
nokkrum dögum seinna var sárið saumað með catgut, þar sem blæð-
ingin var mjög djúpt í því. Stöðvaðist hún þá, en tók sig upp á ný eftir
nokkra daga. Maðurinn kom til lækna bæði á Eslcifirði og Seyðisfirði,
umbúðum var skipt og tampónerað, en blæðing hélzt, þar til rúmum