Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1947, Blaðsíða 138
136
var úr R-steini, annað steypt og hið þriðja úr asbestplötura, og haldið
hefur verið áfram byggingu þeirra, sem ekki var lokið við síðast liðið
ár. KEA á Akureyri hefur látið byggja vörugeymsluhús og lagfæra
búð sína hér. Þrifnaður mun víðast allsæmilegur, en samt eru enn í
héraðinu heimili, sem ekki hafa losað sig við lúsina, og enn vantar
nokkuð á, að vatnssalerni séu komin á öll heimili í sveit; veldur þar
nokkru um, að erfitt hefur verið fá þau og það, sem til þeirra þarf.
Þórshafnar. Þrifnaður hefur talsvert aukizt, síðan vatns- og skolp-
veita komu til sögunnar, enda hafa margir komið upp hjá sér vatns-
salernum. Einnig hefur árleg hreinsun þorpsins að tilhlutun hrein-
lætisnefndar orðið til fyrirmyndar og vakið fólk til umhugsunar um
þessi mál. Þó hreykja mykjuhaugarnir sé enn á stöku stað.
Vopnafj. í sveitinni var 1 steinhús fullgert að mestu og öðru komið
undir þalc. Unnið var að endurbyggingu Burstarfellsbæjar, sem nú
er eign ríkisins. í kauptiininu voru á árinu i smiðum 2 steinhús —
íbúðarhús — og 2 íbúðarhús úr asbestplötum. Voru öll gerð fokheld.
Áhugi er nú mikill hjá hændum fyrir því að endurbæta gripahús og
færa saman, svo og byggja stórar hlöður, sem hægt sé að geyma í mest
allt heyið og koma fyrir í þeim tækjum til súgþurrkunar. Erfiðleikar
eru þó talsverðir um útvegun á efni til þessara framkvæmda. Yfir-
leitt verður ekki annað sagt en að mikill umbóta- og framfarahugur
sé í mönnum. Verður að vísu ekki allt gert í einu, en miðar þó stöð-
ugt að því marki að bæta og fegra heimilin og gera öll vinnubrögð
auðveldari. Er þess mikil þörf, því að stöðugt fækkar vinnandi hönd-
um til sveita. Um rafmagnsmálin horfir þunglega hér, en allir þrá
að fá hinn ágæta orkugjafa, rafmagnið, og sjá í honum að vonum
vísi til nýs og betra lífs, jafnframt voninni um það, að þá kunni að
stöðvast flóttinn frá búskap og sveitum landsins.
Egilsstaða. Á Egilsstöðum hefur á 2 síðustu árum risið upp vísir
til þorps. Eru þar komin 10 íbúðarhús, fullgerð eða í smíðum, auk bú-
staða héraðslæknis og dýralæknis. Enn fremur verzlunarhús Kaup-
félags Héraðsbúa með íbúð fyrir starfsfólk. Það á líka slátur- og
frystihús í smíðum, komið undir þak, hér á staðnum. í öllum þessum
húsum eru vatnssalerni og aðstaða fyrir bað, sem þó er ekki komið
nema í sum þeirra, því að ómögulegt virðist að fá nauðsynlega hluti
til þeirra. Sameiginleg vatnsleiðsla er fyrir þessi hús, og ætlunin er
að sameiginleg skolpleiðsla verði gerð, en ekki hafa enn fengizt teikn-
ingar af fyrirkomulagi hennar. Öll húsin hafa rafmagn til ljósa og
suðu frá rafstöð, sem rekin er með olíuhreyfli. Á þessum 2 árum
hafa verið byggð 17 íbúðarhús annars staðar í héraðinu. Þessi hús
eru yfirleitt sæmilega vönduð, öll úr steinsteypu. í sum þeirra vantar -s
enn hreinlætistæki, salerni og bað, en það mun standa til bóta. Þó að
þrifnaður breytist heldur til bóta, þá vantar enn mjög mikið á,
að ástandið sé gott í þeim efnum. Til dæmis iná nefna, að á árinu fór
farkennsla fram á 19 bæjum í 5 hreppum héraðsins. Af þeim eru sal-
erni á 4 eða 21%. Nú er þess að gæta, að yfirleitt eru betri heimilin
og þar sem byggingar eru með betra móti valin til skólastaða. Og
þó að elcki sé hægt að fullyrða, að þetta sé rétt mynd af ástandinu í
salernismálum héraðsins, eru meiri líkur, að myndin sé fegruð